Friday, July 12, 2013
Grænir þakka fyrir sig
Celtics keypti heilsíðu auglýsingu í Boston Globe í dag þar sem félagið þakkar þeim Kevin Garnett og Paul Pierce fyrir vel unnin störf. Þeir félagar eru gengnir í raðir Brooklyn Nets og uppbyggingarstarf því fram undan hjá þeim grænu.
Efnisflokkar:
Allt er vænt sem vel er grænt
,
Celtics
,
Félagaskiptaglugginn
,
Kevin Garnett
,
Leikmannamál
,
Paul Pierce
Paul Silas er sjötugur í dag
Stórhöfðinginn Paul Silas á stórafmæli í dag og er orðinn sjötugur. Hann hefur verið viðriðinn NBA deildina meira og minna í hálfa öld, fyrst sem leikmaður og síðar sem þjálfari. Silas var um það bil 10/10 maður að meðaltali yfir ferilinn, var tvívegis í Stjörnuliði og tvisvar í 1. varnarúrvali deildarinnar.
Hann kom inn í deildina árið 1964 þegar St. Louis (Atlanta) Hawks tók hann í annari umferð nýliðavalsins. Auk þess lék hann með Boston, Denver, Phoenix og Seattle.Silas varð meistari með Boston 1974 og ´76 og krækti í þriðja titilinn með Sonics árið 1979.
Þjálfaraferill Silas hófst árið 1980 þegar hann tók við San Diego Clippers en þar var hann aðeins í þrjú ár.
Næst poppaði hann reyndar ekki upp fyrr en hjá Charlotte/New Orleans Hornets árið 1998 og var þar til 2003, þegar hann tók við Cleveland í tvö ár. Þar var hann þess heiðurs aðnjótandi að vera fyrsti maðurinn sem þjálfaði LeBron James þegar hann kom inn í deildina 2003.
Nú síðast þjálfaði Silas vitleysingahælið Charlotte Bobcats frá árinu 2010 til 2012 og hefur eflaust fengið alveg nóg af þjálfun eftir þann hrylling. Ritstjórn NBA Ísland óskar Silas hjartanlega til lukku með daginn og vonar að hann þurfi aldrei að þjálfa lið eins og Kettina aftur.
Efnisflokkar:
Afmæli
,
LeBron James
,
Paul Silas
,
Sögubækur
,
Titlar
,
Þjálfaramál
Ungir og efnilegir
Andrew Bynum
Baron Davis
Dwight Howard
Gilbert Arenas
Al Harrington
Andre Iguodala
Josh Smith
Kevin Garnett
Jeremy LinMarc Gasol (mjög líklega þriðji gítarleikari Sepultura á þessum tíma)
Carmelo Anthony
Rasheed Wallace
Hedo Turkoglu og Peja Stojakovic
Tyson Chandler
Dwyane Wade

Deron "Bolla" Williams
Efnisflokkar:
Faðir Tími
,
Klassík
,
Nostalgía
,
Nýliðar
,
Yngri Flokkar
,
Þetta er ungt og leikur sér
Afgreitt mál
Efnisflokkar:
Ákvörðunin
,
Dagblöð og tímarit
,
Forsíður
,
Hatorade
,
Heat
,
LeBron James
,
Sólstrandargæjarnir
Thursday, July 11, 2013
Odom gerir allt fyrir bolinn
Slúðurfréttavefurinn TMZ greinir frá því í dag að Lamar Odom hafi reiðst eitthvað út í papparassana sem elta hann á röndum alla daga. Sagan segir að framherjinn samningslausi hafi kastað eigum ljósmyndaranna út um allt og gert sig líklegan til dólgsláta með barefli.
Seinni og væntanlega meira óspennandi hluti þessara viðskipta var festur á filmu eins og þið sjáið hérna fyrir neðan, en það voru ekki deilurnar við papparassana sem vakti forvitni okkar.
Það sem vakti athygli okkar í myndbrotinu var óheyrileg fagmennskan hjá Odom þegar stúlka nokkur vippar sér að honum þegar hann er í miðju atinu og biður um að fá að smella af einni mynd. Ekki málið að græja það, svona rétt á meðan hann rantar á papparassana.
Odom er löngu orðinn hundleiður á að spila körfubolta og hefur ekki nennt að vera í formi í tvö ár, en þetta atvik (myndatakan, ekki reiðiskastið) þykir okkur bera vott um góðvild og algjöra fagmennsku.
Efnisflokkar:
Bolurinn
,
Dólgslæti
,
Frussandi gremja
,
Kardashian
,
Lamar Odom
,
Papparass
Fyrir 21 ári...
... spilaði Doc Rivers með LA Clippers í einn vetur.
Hann stoppar vonandi lengur að þessu sinni.
Efnisflokkar:
Clippers
,
Doc Rivers
,
Félagaskiptaglugginn
,
Þjálfaramál
Saga af Larry
"We’re playing the Knicks, and the Knicks had a trainer named Mike Saunders, and they were messing around on the court before the game. Larry was a great trash talker. He and Saunders were going back and forth, and Saunders bet Larry five bucks that Larry wouldn’t bank in a three-pointer during the game.
So, we get in this game. It’s a close game, and there’s like 40 seconds left when Saunders catches Larry’s attention from the sideline. He was smiling and holding up five fingers, because Larry hadn’t banked one in at that point.
And with about 20 seconds left Larry banks in a three-pointer to win the game, and he just turns to Saunders and smiles and holds up five fingers of his own. Larry had that kind of nerve and confidence."
-- Greg Kite, fyrrum samherji Larry Bird hjá Boston Celtics
(til vinstri á myndinni hér fyrir neðan)
Efnisflokkar:
Celtics
,
Goðsagnir
,
Klassík
,
Larry Bird
Tvífarar dagsins
Efnisflokkar:
Brad Stevens
,
Doppelgangers
,
McLovin
,
Sælar stelpur
,
Þetta er ungt og leikur sér
Joakim Noah skoraði mark og hataði það alveg
Miðherjinn skemmtilegi Joakim Noah hjá Chicago Bulls skoraði þetta laglega mark í góðgerðaleik á vegum Steve Nash. Eins og sjá má á fagnaðarlátunum, var Noah að hata þetta allt saman.
Efnisflokkar:
Fögn
,
Joakim Noah
,
Knattspyrna
,
Tilþrif
,
Vel Gert
Wednesday, July 10, 2013
Pörupiltavodki Denna Dæmalausa
Ólíkindatólið Dennis Rodman er jafnan með puttana í öllu sem hann kemst yfir og nýjasta trixið hjá kappanum er að leggja nafn sitt við áfengistegund sem frumsýnd verður í lok mánaðarins.
Um er að ræða Vodka sem fengið hefur nafnið "Bad Boy" (ís. Pörupiltavodka) og samkvæmt fréttatilkynningu frá Rodman er hann "beittur á bragðið, en um leið klassískur - ég í hnotskurn."
Drykkurinn kemur í hillurnar þann 27. júlí í Kaliforníu. Þetta þýðir væntanlega að Rodman verður ekki áfengislaus næstu árin, jafnvel þó hann verði blankur. Þetta eru... vafasöm tíðindi.
Efnisflokkar:
Auglýsingar
,
Dennis Rodman
,
MAFS
,
Markaðsmál
,
Ölvun og dólgslæti
Stigaskor á myndrænan hátt
Rákumst á nokkrar skemmtilegar töflur sem sýna leikmennina sem hafa verið atkvæðamestir í stigaskorun hjá þremur af sigursælustu félögum NBA deildarinnar síðustu áratugi (Bulls, Celtics, Lakers). Myndrænt og skemmtilegt - smelltu á gröfin til að stækka þau.
Efnisflokkar:
Excel
,
Töflur og gröf
,
Tölfræði
Leiktíð langskota
Langskotin eru alltaf að verða stærri partur af sóknarleiknum í NBA deildinni. New York skaut liða mest fyrir utan á síðustu leiktíð en Golden State, með Steph Curry í fararbroddi, var með bestu nýtinguna - rétt tæp 40% sem lið.
Hér fyrir neðan er skemmtilegt föndur um frábæra leiktíð Curry og svo tvær töflur sem sýna annars vegar flestar þriggja stiga tilraunir liða og svo bestu nýtingu liða á nýafstaðinni leiktíð.
Efnisflokkar:
Metabækurnar
,
Netbrennur
,
Stephen Curry
,
Tölfræði
,
Warriors
,
Þristar
Monday, July 8, 2013
Perlan og Riley
Rákumst á þessa skemmtilegu mynd á rúntinum um netið. Þetta er blaðaúrklippa frá árunum í kring um 1970 sem sýnir "Perluna" Earl Monroe hjá Baltimore Bullets dansa í kring um Pat Riley, þáverandi leikmann San Diego Rockets.
Þeir Riley og Monroe komu báðir inn í NBA deildina árið 1967 en gegndu ólíku hlutverki hjá liðum sínum. Riley var rulluspilari allan leikmannsferilinn og sló ekki í gegn fyrr en hann hætti að spila og gerðist þjálfari.
Perlan lét hinsvegar strax til sín taka og var kjörinn nýliði ársins 1968 þegar hann skilaði 24 stigum, 6 fráköstum og 4 stoðsendingum í leik með Bullets.Monroe og félagar komust alla leið í lokaúrslitin árið 1971 en máttu sín lítils gegn ógnarsterku liði Milwaukee Bucks með þá Jabbar og Oscar Robertson fremsta í flokki.
Mikil meiðsli voru í herbúðum Bullets og fyrir vikið var liðinu sópað í úrslitunum 4-0.
Svo skemmtilega vill til að leiktíðina 1971-72 skiptu bæði Riley og Monroe um lið. Monroe fór þá til New York Knicks þar sem hann myndaði eitt besta bakvarðapar sögunnar ásamt Walt "Clyde" Frazier, en þeir félagar skoruðu samtals um 46 stig í leik að meðaltali á þessari leiktíð.
MYND: Phil Jackson (nr.18) setur hindrun fyrir Walt Frazier (nr.10) í leik gegn Seattle Supersonics. Spencer Haywood (nr.24) heldur utan um Jackson og ennisbandafrumherjinn "Slick" Watts fylgist með lengst til hægri.
Pat Riley gekk í raðir LA Lakers og reyndist happafengur hinn mesti ef marka má árangur liðsins eftir komu hans, því hér er um að ræða liðið sem vann 33 deildaleiki í röð og setti met sem stendur enn. Lakers lauk deildakeppninni með 69 sigra og 13 töp, sem á þeim tíma var met.
Lykilmenn í þessu Lakers-liði voru Wilt Chamberlain, Jerry West, Gail Goodrich, Jim McMillian og Happy Hairston og er þetta lið oftast haft með í umræðunni þegar talað er um bestu lið allra tíma í NBA deildinni. Og enn lágu leiðir Monroe og Riley í líka átt, því New York og Los Angeles mættust svo í lokaúrslitunum þetta árið, þar sem Lakers hafði betur 4-1 og landaði því loksins titlinum langþráða.
Liðið hafði þá tapað hvorki meira né minna en sjö sinnum í lokaúrslitum frá árinu 1962 - oftast fyrir frábæru Celtics-liði Bill Russell og félaga sem var nánast áskrifandi að meistaratitlinum á þessum árum.
MYND: Pat Riley hjá Lakers (nr.12) sækir að Phil Jackson hjá Knicks (nr.18)
New York þurfti ekki að bíða lengi eftir að ná fram hefndum gegn Lakers, því árið eftir snerist dæmið við þegar Knicks vann öruggan 4-1 sigur í úrslitaeinvíginu 1973. Þetta var annar meistaratitillinn í sögu Knicks, sem reyndar hefur ekki unnið hann síðan.
Til gamans má geta þess að þjálfarinn Phil Jackson var í leikmannahópnum hjá New York árið á þessum árum, en var aðeins rulluspilari hjá liðinu líkt og Pat Riley hjá Lakers. Það var "Kafteinninn" Willis Reed sem kjörinn var verðmætasti leikmaður úrslitaeinvígisins 1973 rétt eins og þremur árum áður.
Efnisflokkar:
Bullets
,
Earl Monroe
,
Gamla myndin
,
Klassík
,
Knicks
,
Lakers
,
NBA 101
,
Pat Riley
,
Phil Jackson
,
Sögubækur
,
Titlar
,
Walt Frazier
Durant á skeljarnar
Stórskorarinn Kevin Durant hjá Oklahoma City fór á skeljarnar á föstudaginn og trúlofaðist WNBA leikmanninnum Monic(u) Wright. Skötuhjúin hafa ekki farið hátt með samband sitt og kemur það ekki á óvart. Kevin Durant er ekki vanur að vera að auglýsa hvað hann er að gera í einkalífinu. Wright spilar með Minnesota Lynx og var valin númer tvö í nýliðavalinu á sínum tíma alveg eins og bóndi hennar verðandi.
Annars var þetta ekki lengi að bruggast hjá krökkunum.
Hér er tíst frá Durant frá árinu 2011:
Or maybe I need a basketball playing girlfriend...hmmm lol...monica wright where r u(love n basketball)
— Kevin Durant (@KDTrey5) September 7, 2011
Efnisflokkar:
Gildi og ákvarðanataka
,
Kevin Durant
,
Séð & Heyrt
,
Tilhugalífið
,
Þetta er ungt og leikur sér
Framtíðarsýn
Nú þekkjum við Kobe Bryant auðvitað ekki neitt, en mikið kæmi það okkur ekki á óvart ef eitthvað svona væri ofarlega í huga hans þegar hann hamast í endurhæfingunni. Kobe vill alltaf eiga síðasta orðið og það verður ekki sérstaklega erfitt að koma honum í gírinn fyrir Rockets leiki á næstunni.
P.s. - Tyson Beck hlýtur að vera flottasta nafn... allra tíma.
Efnisflokkar:
Andlitsmeðferð
,
Dwight Howard
,
Hefnd
,
Kobe Bryant
,
Sjoppan
,
Slátur
,
Stolið efni
,
Taktu spjótið
,
Veðrið þarna uppi
Garnett og fjölskylda í afmæli
Það er ekkert slor að vera frægur. Það þýðir að séu góðar líkur á því að annað frægt fólk bjóði þér í afmælisveislur barnanna sinna.
Þannig var það í Malibu í Kaliforníu um helgina þegar haldið var upp á fimm ára afmæli Levi McConaughey, sonar hjartaknúsarans og Hollywood-leikarans Matthew McConaughey. Meðal þeirra sem mættu í geimið voru Óskarsverðlaunahafinn Sandra Bullock og Garnett-fjölskyldan.
Kevin Garnett, sem nýverið gekk í raðir Brooklyn Nets, er nágranni McConaughey og á dóttur á svipuðum aldri og leikarinn tungulipri. Garnett hefur búið í Malibu á sumrin í meira en áratug.

Efnisflokkar:
Afmæli
,
Fræga fólkið
,
Kevin Garnett
,
Kvikmyndahornið
,
Papparass
,
Séð & Heyrt
Subscribe to:
Posts (Atom)











































