Thursday, October 18, 2012
Troðkóngurinn leikur sér
Efnisflokkar:
And1
,
Andlitsmeðferð
,
Burt með þetta sull
,
Jeremy Evans
,
Veðrið þarna uppi
Wednesday, October 17, 2012
Ekvadoooooor!!!
Efnisflokkar:
Hamarinn
,
Knattspyrna
,
Líkamsþróttur er eftirsóttur
,
Og nú að allt öðru
,
Svægi
Dásamlegir brestir Bryants
Við vitum að það er ekki mikið að marka hluti sem gerast á undirbúningstímabilinu, en hægt er að koma auga á eitt og annað skemmtilegt ef vel er að gáð. Tendensa, strauma og stefnur.
Eins og í nótt þegar Lakers tók á móti Jazz í Anaheim. Dwight Howard og Pau Gasol voru ekki með Lakers og Kobe Bryant virkaði áhugalaus í fyrri hálfleik. Það var eins og hann nennti ekki að spila leikinn, enda lítið í húfi.
Í þriðja leikhluta rann hinsvegar á hann æði. Bryant skoraði þá 23 stig, meðan restin af liðinu skoraði jú... eitt stig. Og mótherjinn? 36 stig.
Lakersliðið var 30+ stigum undir allan tímann meðan Bryant hamaðist og hamaðist. Tók hvert slæma skotið á fætur öðru. Mörg þeirra fóru ofan í og náðu að kveikja aðeins í áhorfendum, sem virtust jafn áhugalausir og Bryant í fyrri hálfleiknum en skemmtu sér nú konunglega.
Þegar þriðja leikhlutanum lauk var staðan orðin 88-51 fyrir Jazz.
Það er ekkert að marka þessar tölur, þær segja ekki neitt, enda vantaði mikið í Lakersliðið sem leyfði mörgum vindlum að spila.
Við vorum heldur ekkert að spá í það.
Við vorum að horfa á Kobe Bryant. Þessa gangandi mannfræðirannsókn, þessa ráðgátu.
Ætlaði hann í raun og veru að skjóta Lakers inn í leikinn aftur - eða var hann bara að leika sér í æfingaleik? Fannst honum á einhverjum tímapunkti dálítið kjánalegt að enginn nema hann skoraði körfu í leikhlutanum?
Og það sem meira er.
Mun þessi maður kaupa það sem þjálfarateymið leggur fyrir hann og leika við hina krakkana í vetur? Og mun það bera árangur?Ef þú sættir þig við styttri útgáfuna af svarinu, er það nei.
En okkur er alveg sama um það líka. Það sem okkur finnst áhugaverðast er að fylgjast með Kobe Bryant sjálfum. Þessu ólíkindatóli sem gengur svo illa að þekkja sín takmörk.
Það gæti orðið dálítið átakanlegt að horfa á Kobe Bryant á lokasprettinum sínum í deildinni.
Hann sættir sig ekki við það að hafa ekki alveg sömu burði og áður. Hann langar að vinna þig og liðið þitt upp á sitt einsdæmi, en hann getur það ekki lengur. Tölfræðin er öll á hægri niðurleið ár frá ári.
Auðvitað er ekkert að því að eldast. Ekki ætlum við að skamma Bryant fyrir það. Allir leikmenn eldast fyrir rest. Við höfum bara dálitlar áhyggjur af því hvernig hann aðlagast hækkandi aldri andlega.
Bryant er ekki orðinn neitt gamalmenni, en hann er að verða búinn að spila óhemjufjölda mínútna í deildinni og hefur litla sem enga hvíld fengið síðustu ár. Hann hefur verið heppinn með meiðsli en allt þetta púl fer líka smátt og smátt að naga í lappir hans og liði.Við höfum oft sagt þetta áður, en við skulum öll fylgjast vel með Kobe Bryant á síðustu árum hans í deildinni. Ekki bara af því hann er einstakur leikmaður og einn af þeim bestu, heldur af því það gæti orðið sápuópera út af fyrir sig hvernig honum tekst að eiga við sjálfan sig, þegar skrokkurinn hættir að geta framkvæmt það sem tryllt keppnisskapið skipar honum.
Fjölda fólks er í nöp við Kobe Bryant og hann fer oft í taugarnar á okkur, en hann er leikmaður sem þvingar þig til að bera virðingu fyrir sér af því hann er alltaf þarna. Eins og íslenskt slagveður - vindurinn er alltaf í andlitið á þér.
Kobe Bryant er alltaf fyrstur á æfingar og síðastur út. Er brjálaður keppnismaður í Ólsen-Ólsen, á æfingum og í leikjum, alveg sama hvort það er á undirbúningstímabilinu, úti í porti eða í leik sjö í úrslitum. Hann er alltaf í árásarham, alltaf tilbúinn að drepa eins og skriðdýrið sem hann líkti sér við. Hann vill alltaf vinna, skora meira en þú, vera betri en þú. Hljómar kunnuglega, en svona eru ekki allir.
Það er ekki hægt annað en að hrífast af þessu, þó þetta snúist stundum í höndunum á honum. Eitt það besta við NBA körfuboltann er að verða vitni að því þegar þessar ofurstjörnur verða mannlegar. Skoðaðu efstu myndina í þessari færslu, en hún er frá Free Darko piltunum og lýsir skapgerðarbrestum Bryant skemmtilega.
Kobe Bryant var bara strákpeð þegar hann kom fyrst inn í deildina og var engin stjarna þó hann væri efnilegur.
Hann þurfti að vinna fyrir öllu sem hann fékk. Það er eitt af því skemmtilega við feril Bryant.
Hann er ekkert silfurskeiðarbarn á körfuboltasviðinu, þó hann sé uppalinn hjá Lakers og sonur pabba síns. Hann vann jú þrjá titla snemma, en menn verða ekki heimsklassa körfuboltamenn bara af því að spila með Shaquille O´Neal.
Kobe fór á bókasafnið og tók bókina "NBA 101" þegar hann var ungur maður. Hann las bókina spjaldanna á milli og kynnti sér hvernig forverar hans höfðu farið að því að vinna titla.
Nærtækasta dæmið fyrir hann var að herma eftir Michael Jordan, enda eru þeir svipaðir íþróttamenn, svipaðir á hæð og spila sömu stöðu.
Svo var bara að gera eins og strákurinn í Sprite auglýsingunni með Grant Hill gerði forðum: Æfa sig.
Kobe Bryant verður aldrei Michael Jordan, en það mun aldrei koma fram leikmaður sem hermir betur eftir honum. Hann gæti þurft að sætta sig við að hafa "aðeins" unnið fimm meistaratitla. Einum fleiri en þú veist og einum færri en þú veist. Ekki alslæmt.
Það verður risavaxið, skarðið sem Kobe Bryant skilur eftir sig þegar hann hættir að spila. Það er því best að njóta þess og fylgjast náið með honum á lokasprettinum. Eitthvað segir okkur að hann muni finna leiðir til að halda okkur við efnið.
Efnisflokkar:
Elli Kelling
,
Faðir Tími
,
Kobe Bryant
,
Lakers
,
Michael Jordan
,
Skoðanir
Tuesday, October 16, 2012
Hlaðvarpið - 6. þáttur, Vegas
Nýjasta Hlaðvarpið er dottið í hús.
Í þessum 6. þætti er staðan tekin á veðbönkunum í Las Vegas og spá þeirra fyrir deildakeppnina í NBA. Baldur og Gunnar velja "undir eða yfir" og taka stöðuna á liðunum í leiðinni.
Þetta er fyrsta Hlaðvarp vetrarins og jafnframt það fyrsta sem unnið er með hjálp stuðningsaðila. Það eru Tónabúðin og Hljóðfærahúsið sem leggja okkur lið í vetur og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir það.
Leitin að hinum fullkomna hljóði heldur áfram og glöggir munu heyra smá suð í þessari upptöku, en þó ætti fólk ekki að vera í vandræðum með að heyra orðaskil.
Munið að það er enginn skyldugur til að hlusta og þetta kostar ekkert.
Þú getur hlustað á nýjasta þáttinn með því að fara inn á Hlaðvarpssíðuna eða stytt þér leið og smellt hér.
Efnisflokkar:
Hlaðvarpið
Monday, October 15, 2012
Svefnlestin í Sacramento
Það verður ekki logið upp á Sacramento Kings. Heimavöllur liðsins hefur fengið nýtt nafn eftir að félagið gerði nýjan samning við styrktaraðila og heitir framvegis Sleep Train Arena.
Það er svo auðvelt að búa til brandara og pun úr þessu að það er bara ósanngjarnt. Heimavöllur Sacramento var einn sá rosalegasti, ef ekki sá besti, fyrir áratug síðan.
Það eru eins og séu hundrað ár síðan, því nú er liðið komið aftur í kjallarann, eigendurnir eru í ruglinu og aðeins tímaspursmál hvenær félagið verður flutt frá höfuðborginni, þó tekist hafi að aftra því síðast.
Hrikalega sorglegt.
Sum félög bara geta ekki unnið.
Efnisflokkar:
Dreptu okkur ekki
,
Kings
,
Mannvirki
Saturday, October 13, 2012
Til lukku með daginn, strákar
Paul Pierce (35) og Doc Rivers (51) eiga afmæli í dag.
Á síðustu leiktíð voru þeir þrír hjá Boston sem áttu afmæli þennan dag, en Celtics er blessunarlega búið að losa sig við hræið af Jermaine O´Neal.
Það verður gaman að sjá hvað Celtics á eftir í vetur. Það hangir mjög mikið á Pierce, þó hann hafi nú fengið nauðsynlega hjálp í formi Jason Terry. Allt í einu er komin smá breidd.
Ætla má að Celtics verði hættulegt næsta vor, þó það vinni kannski ekki fegurðarsamkeppnir í vetur.
Efnisflokkar:
Afmæli
,
Celtics
,
Elli Kelling
,
Faðir Tími
Friday, October 12, 2012
Af metnaðarleysi ÍR-inga
Suma hluti er bara ekki hægt að líta jákvæðum augum. Hluti eins og algjört metnaðarleysi ÍR-inga til að halda uppi lágmarks þjónustu fyrir deildina, stuðningsmennina og blaðamenn.
Það var leikur í Seljaskóla í kvöld og þegar klukkan er farin að ganga ellefu, veit enginn sem ekki fór á leikinn hvernig hann fór. Þetta er útvalsdeildarleikur.
Í desember árið 2010 vöktum við athygli á þessu asnalega máli í færslu hér á vefnum og skoruðum við þá á ÍR-inga og aðra sem væru með netmálin í ólagi hjá sér að laga þau. ÍR-ingar tóku þessi skilaboð ekki til sín þá og eru enn ekki búnir að því.
Hvernig dettur mönnum í hug að reka lið í efstu deild árið 2012 og vera ekki með skothelda nettengingu í húsinu? Þetta er bara fáránlegt. Það er ekki hægt að kalla það neitt annað.
Við höfum ekkert á móti ÍR og eigum ekki að þurfa að taka það fram, það vita allir sem lesa þessa síðu, en nú er komið nóg af þessu bulli. ÍR-ingar verða bara að fá að heyra það núna. Svona rugl gengur ekki.
Reynið að sýna smá metnað og fjósast til að koma þessu í lag. Það duga engar afsakanir lengur.
Mynd/ÍR
Efnisflokkar:
Aðstaða Blaðamanna
,
Heimabrugg
,
ÍR
,
Metnaður
,
Umgjörð
Tími Stjörnunnar er kominn
Það er haustbragur á nokkrum liðum í Úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Ekkert óeðlilegt við það. Liðin eru að fá til sín nýja leikmenn og sum þeirra, eins og til dæmis KR, þurftu að vera án lykilmanna í undirbúningnum vegna verkefna þeirra með landsliðinu.
Garðbæingar hafa unnið tvo fyrstu leiki sína örugglega í deildinni og við sáum þá vinna auðveldan sigur á Keflavík í gærkvöld 101-83.
Nú ætlum við ekki að fara að vera með yfirlýsingar um Domino´s deildina í byrjun október, en það eru ansi góðir hlutir að gerast í Garðabænum.
Þó Stjarnan sé tæknilega aðeins með einn Bandaríkjamann í sínum röðum, hefur breiddin aldrei verið meiri hjá liðinu.
Það er ekki auðvelt fyrir þá Teit og Snorra að útdeila þessum 200 mínútum sem í boði eru og sjálfsagt þarf einhver að fara í fýlu annað slagið.
Þessi samkeppni er lúxusvandamál en að lokum er það liðið sem græðir á þessu. Þjálfararnir geta með góðri samvisku keyrt á tíu mönnum án þess að liðið slái feilpúst. Þetta er staðan hjá Stjörnunni í dag.
Stjörnuliðið var sterkt á síðustu leiktíð og hefur auðvitað verið það lengi. Það vantaði ekki mikið upp á hjá þeim þegar þeir féllu úr leik gegn Íslandsmeisturum Grindavíkur í vor, en það hafðist ekki. Það hlýtur því að vera komið ansi mikið hungur í leikmannakjarna Stjörnunnar.
Þessi kjarni hefur nú leikið saman í nokkur ár og það er sannarlega styrkleiki. Meðan flest liðin í deildinni eru að skipta um leikmenn eins og nærbuxur, eru þessi sömu kunnuglegu andlit alltaf á sínum stað í Garðabænum.
Það leynir sér heldur ekki í spilamennsku liðsins að þeir þekkjast orðið ansi vel þeir Justin Shouse, Jovan, Marvin og Fannar. Í okkar bókum er svona rútína mjög mikilvæg og það leiðir okkur að rótum þessarar hugleiðingar.
Tími Stjörnunnar er núna.
Liðið er nú búið að vera að míga utan í toppinn í nokkur ár, hefur farið í úrslit og unnið bikar, en alltaf vantað herslumuninn. Það er kominn tími til að brúa þetta bil og klára dæmið.
Eins og áður sagði er breiddin orðin frábær hjá Stjörnunni, þú finnur ekki lið með sterkari hóp - amk á pappírunum góðu. Leikmenn þekkjast vel, þjálfarinn þekkir þá, allir þekkja sína rullu og vita hvað þeir eiga að gera.
Nú er bara að ná sér í annan bandarískan leikmann og loka þessu. Annað hvort stóran skotblokkara/ frákastara í teiginn eða neyðarkarl í sóknarleikinn, mann sem getur skapað og skorað upp á sitt einsdæmi. Líklega er síðari kosturinn vænlegri í þessu tilviki.
Þá er bara að sjá úr hverju Garðbæingar eru gerðir, hvort þeir hafa það sem til þarf til að loka þessu. Það er alveg bókað að leikmenn liðsins sætta sig ekki við neitt annað en að fara í úrslit næsta vor og þegar þangað er komið á annað borð - vill auðvitað enginn maður tapa.
Lítum á þetta sem létta haustáskorun fyrir Garðbæinga.
Engin pressa.
Efnisflokkar:
Heimabrugg
,
Stjarnan
Thursday, October 11, 2012
Litli-Manu
Nando De Colo, nýliði San Antonio Spurs, hefur fengið viðurnefnið Litli-Manu.
De Colo er ekki alveg þessi dæmigerði nýliði, enda 25 ára gamall og franskur landsliðsmaður. Það sýndi hann líka í gær þegar hann skoraði 11 stig, gaf 9 stoðsendingar og skoraði sigurkörfuna í sigri San Antonio á Atlanta í æfingaleik.
Það var félagi hans í franska landsliðinu, Tony Parker, sem teiknaði upp kerfið sem færði Spurs sigurinn.
De Colo þykir minna dálítið á Manu Ginobili, annan leikmann Spurs, þegar sá síðarnefndi kom fyrst til San Antonio. Var þá dálítið villtur. Annars eru það helst sendingafræðin hjá De Colo sem þykja minna á Argentínumanninn, sem fyrir löngu er orðin goðsögn.
"Ég er með einn Manu fyrir - ég þarf ekki annan," tautaði Gregg Popovich einhverju sinni þegar De Colo kastaði boltanum út af.

Nú erum við ekki að eyða þessu plássi í De Colo af því við teljum að hér sé komin næsta stórstjarna í NBA. Það er bara svo gaman að sjá hvernig menn gera hlutina þarna í San Antonio.
Óvíst er að Frakkinn fái mínútur hjá liðinu í vetur, enda er nóg af fínum leikmönnum í þeirra röðum. Það er bara svo skondið að sjá hvað San Antonio virðist alltaf vera skrefinu á undan öllum öðrum þegar kemur að því að finna gimsteina í fjóshaugum - og gera úr þeim frábæra körfuboltamenn.
Það er ekki langt síðan Gary Neal skaust fram á sjónarsviðið með svipuðum hætti hjá Spurs. Hann skoraði sigurkörfu í æfingaleik á sínum tíma eftir að Manu Ginobili hafði teiknað upp fyrir hann flott kerfi og hann hefur reynst betri en enginn hjá Spurs.
Vonandi nær Nando De Colo að gera eitthvað svipað.
Efnisflokkar:
Fagmennska
,
Litli-Manu
,
Nýliðar
,
Spurs
Við færum ykkur Steve Nash
Stuðningsmenn Los Angeles Lakers eru vafalítið mjög spenntir fyrir komu Steve Nash. Okkur áskotnuðust nokkrar flennistórar myndir af kappanum í dag og langar að deila þeim með ykkur.
NBA Ísland heldur bara áfram að gefa.




Efnisflokkar:
Lakers
,
Myndir
,
Steve Nash
Monday, October 8, 2012
Þrjátíu og fimm núll
Af hverju tókum við þetta skjáskot af Jodie Meeks á vítalínunni, spyrðu?
Af því með þessu vítaskoti stöðvaði hann 35-0 rispu Golden State frá þriðja yfir í fjórða leikhluta í æfingaleik Lakers og Warriors í nótt. Rétt er að taka fram að sterkustu leikmenn Lakers komu hvergi við sögu í þessari niðurlægingu. Þeir stóðu sig vel í fyrri hálfleiknum.
Það er samt alveg sama hvort þetta er æfingaleikur eða úrslitaleikur.
Maður fær bara ekki á sig 35-0 sprett í körfuboltaleik. Ekki undir nokkrum kringumstæðum.
Efnisflokkar:
Lakers
,
Of mikill frítími
Sunday, October 7, 2012
Úrvalsdeildin er byrjuð á ný, krakkar.
Strákarnir í Fjölni byrjuðu leiktíðina í Úrvalsdeildinni á því að gefa spámönnum langt nef og leggja meistaraefnin í KR. Það er prýðilegur sigur, sama hvernig á það er litið og gaman fyrir Hjalta Vilhjálmsson að byrja þjálfaraferilinn með þessum hætti. Þú sérð hann enda hrista krepptan hnefann af fögnuði í leikslok á neðstu myndinni í færslunni.
Það verður enginn að pæla í því í vor hvernig þessi leikur fór, ef einhverjir KR-ingar ætla að fara í þunglyndi yfir þessu. Engin ástæða til þess auðvitað.
Ritstjórninni þótti ákaflega gaman að sjá þá Helga og Brynjar aftur í aksjón með KR. Auðvitað er það sterkt að íslenskir piltar séu að spila úti í löndum í skólum og atvinnudeildum, en ritstjórn NBA Ísland hugsar auðvitað bara um skutinn á sjálfri sér og vill því hafa þessa skemmtikrafta alla saman heima á Íslandi svo hægt sé að horfa á þá í hverri viku.
Í framhaldi af því er rétt að benda þeim Pavel Ermolinski, Hlyni Bæringssyni og Ægi Þór Steinarssyni að fara nú að drífa sig heim sem fyrst bara...
Ritstjórn NBA Ísland er á sama máli og aðrir Íslendingar þegar kemur að Helga Magnússyni. Hann er auðvitað algjör toppmaður. Við erum hinsvegar alls ekki sátt við það hlutverk sem hann á að skila hjá KR, ef það hefur ekki komið fram hjá okkur áður. Teljum það hvorki KR né Helga til framdráttar að þurfa að gera tvo hluti í einu.
Brynjar Þór var ekki lengi að minna okkur öll á það hvers við söknuðum þegar hann var í burtu. Einstaklega skotviss og skemmtilegur leikmaður.
Þjálfarinn spilandi náði sér ekki á strik í sóknarleiknum, enda upptekinn með hugann við allt annað. Ætli sé ekki best að þú venjir þig strax við það að við séum að tuða yfir hlutverki Helga, við gætum átt eftir að gera það í allan vetur.
Fjölnismaðurinn ungi Gunnar Ólafsson náði sér í prik hjá okkur í kvöld.
Árni Ragnarsson er valmenni og höfðingi. Það vita auðvitað allir, en það verður bara ekki sagt nógu oft. Við getum ekki hugsað til þess hvar Fjölnisliðið væri án hans. Algjör baráttuhundur, fjölhæfur, sterkur og liðsmaður út í gegn. Ekki hægt að hugsa sér mikið betri menn til að leiðbeina ungu kynslóðinni en Árna.
Úrvalsdeildin er byrjuð krakkar.
Hún er nú kennd við flatbökurnar frá Domino´s. Það stuðlar að minnsta kosti. Með fullri virðingu fyrir flugfélaginu sem áður var bakhjarl deildarinnar, var nafnið óskaplega óþjált. Dominosdeildin hljómar hundrað sinnum betur.
Góða skemmtun, góðar stundir.
Efnisflokkar:
Fjölnir
,
Heimabrugg
,
KR
Hann er ekki hættur
Ronaldinho hefur ekki gleymt því hvernig á að hjóla. Hann er reyndar flinkari en flestir þegar kemur að því að hjóla. Okkur þótti afar vænt um að sjá þetta. Hann er enn með þetta, svona þannig.
Efnisflokkar:
Goðsagnir
,
Knattspyrna
,
Og nú að allt öðru
,
Ruglað saman reitum
Saturday, October 6, 2012
Misstórir markaðir
Annars vegar sjáum við hvernig var um að lítast á fjölmiðladaginn hjá LA Lakers og hinsvegar hjá Memphis Grizzlies.
Það var auðvitað extra spenna hjá Lakers þar sem tvær stórstjörnur gengu til liðs við þá gulu, en þessar tvær myndir sýna samt svo skemmtilega hver munurinn er á umstanginu í kring um liðin.
Los Angeles er auðvitað einn stærsti markaðurinn í NBA, meðan Memphis er einn sá minnsti. Það skilar ekki endilega árangri að spila á stórum markaði, en það kvartar nú enginn undan því.
Efnisflokkar:
Aðsókn
,
Aðstaða Blaðamanna
,
Fjölmiðladagurinn
,
Markaðsmál
Friday, October 5, 2012
Fjölmiðladagurinn: Bestu myndirnar
Hvað er Vince Carter að gera? Í alvörunni.
Mo Williams var myndaður með hafnaboltakylfu, golfkylfu og (amerískan) fótbolta.
Hann verður aðalleikstjórnandi Utah Jazz í vetur.
Gallo er frekar ógnvekjandi með þennan haka, sem er eitt áhugaverðasta props sem við höfum séð á fjölmiðladaginn.
Það er nákvæmlega ekkert eðlilegt við þessa mynd.
Leikmenn Nets fengu allir tertu. Það hefði ekki verið ónýtt að gæða sér á einni Reggie Evans tertu.
Carlos Boozer leikur í MC Hammer myndbandi.
Eins og við sjáum á myndinni hér fyrir ofan, mætir Lamar Odom í sínu besta formi í æfingabúðir Clippers. Greinilega staðráðinn í því að koma ferlinum á beinu brautina á ný eftir bullið í fyrra.
Boston er með 99 vandamál á sinni könnu og því miður höfum við grun um að Darko Milicic eigi eftir að verða eitt þeirra.
Dwight Howard byrjar feril sinn sem Lakers maður á alvarlegu nótunum. Það verður gaman að sjá hvernig honum tekst að díla við mannæturnar í LA miðlunum. Gangi þér vel, Dwight.
Eðlilegur pólskur miðherji.
Efnisflokkar:
Eðlilegt
,
Fjölmiðladagurinn
Fjölmiðladagurinn: Lakers
Lakers stal fyrirsögnunum í sumar með því að fá til sín Dwight Howard (loksins) og Steve Nash. Þó það nú væri að eitthvað væri skrifað um það.
Þessi mannskapur hjá Lakers lítur ansi hreint vel út á pappírunum, en við erum hrikalega svartsýn á hvernig þetta á eftir að ganga þegar liðið byrjar að spila körfubolta.
Einhverjir hafa áhyggjur af því að Dwight Howard og Pau Gasol geti ekki spilað saman.
Því erum við alls ekki sammála, þeir gætu einmitt átt eftir að svínvirka saman, Howard niðri á blokkinni og Gasol á háa póstinum, dælandi góðum sendingum sínum.
Það sem við skiljum hinsvegar ekki, er jafnan Kobe Bryant, Mike Brown, Princeton sóknin og Steve Nash.
Við erum hreint ekki viss um að Kobe sé tilbúinn að leika fallega við hina krakkana, sérstaklega nú þegar er kominn lítill hvítur krakki í sandkassann hans sem þarf helst að fá að leika dálítið með dótið hans Kobe svo liðinu gangi vel. Svo er nýi krakkinn í miðjunni líka helvítis dramadúkka og fer alltaf að grenja ef honum finnst hann ekki vera aðalnúmerið í leiknum.
Kobe Bryant er líka mannlegur og tölurnar hans ljúga engu um það heldur. Bryant er kominn yfir sitt besta, enda búinn að spila óguðlegar mínútur síðustu ár. Vandamálið er ekki það að hann skuli vera farinn að slá aðeins af. Vandamálið er hvort hann sættir sig við það. Við höfum dálitlar áhyggjur af því.
Lakers vinnur fullt af körfuboltaleikjum í vetur, en við sjáum þetta lið ekki vinna meistaratitil. Varnarleikurinn og breiddin eru einfaldlega ekki til staðar til þess. Nokkuð augljósir veikleikar. Þýðir það að við munum ekki stilla á Lakers-leiki í vetur? Hreint ekki. Hreint ekki. Það verður gaman að horfa á Lakers. Frábært, líklega.

Efnisflokkar:
Fjölmiðladagurinn
,
Lakers
Fjölmiðladagurinn: Heat
Fjölmiðladagurinn árlegi í NBA deildinni fór fram mánudaginn 1. október. NBA Ísland kíkti í heimsókn til nokkurra liða í deildinni og lagði fram nokkrar athugasemdir, hvort sem það var viðeigandi eða ekki. Þetta tekur nokkrar færslur og í þeirri síðustu tökum við saman skemmtilegustu myndir fjölmiðladagsins 2012.
Finndu snöggvast lið sem slær Miami út úr úrslitakeppninni 2013...
LeBron James er búinn að vera langbesti körfuboltamaður í heimi í nokkur ár og nú hefur hann dollur og medalíur sem undirstrika það endanlega.
Miami á að verja titilinn ef James heldur heilsu. Liðið er búið að bæta við sig stórskyttum og það eru ágætis líkur á því að Dwyane Wade verði við betri heilsu næsta vor en hann var þegar liðið vann titilinn. Fleiri rök þurfum við ekki til að spá því að Miami vinni þetta aftur, jafnvel þó allir segi að það sé miklu erfiðara að verja titilinn en vinna hann í fyrsta skipti.
Hver á að stöðva þetta lið?



Efnisflokkar:
Fjölmiðladagurinn
,
Heat
,
LeBron James
Subscribe to:
Posts (Atom)



































