Thursday, December 12, 2013
Rólegur Iván!
Efnisflokkar:
Karlmannleg ást
,
Knattspyrna
,
Rólegur
,
Slátur
,
Tilhugalífið
,
Þetta verður vont á morgun
Af hverju Jaric?
Aldrei þótti okkur hann Marko Jaric neitt augnayndi þegar hann spilaði í NBA deildinni og satt best að segja finnst okkur hann bara eiginlega ljótur.Augun eru til dæmis á röngum stað í grillinu á honum. Já, Jaric var hvorki frábær körfuboltamaður né fallegur.
Það er konan hans hinsvegar, hún Adriana Lima.
Hún er fædd í Brasilíu og á með honum tvö börn. Hún er náttúrulega heimsfræg fyrirsæta. Hvernig í fjandanum fer hann að þessu? Og ætli sé hægt að tappa þessu á flöskur? Þetta er náttúrulega rugl.
Efnisflokkar:
Allir að halda sér
,
Gildi og ákvarðanataka
,
Keppnistanið
,
Og nú að allt öðru
,
Tilhugalífið
Glen Davis á alsælu í viðtali?
Ólíkindatólið Glen "Big Baby" Davis fer oftast ótroðnar slóðir í lífinu. Við sjáum að hér á það við í viðtali sem hann fór í eftir að Orlando-liðið hans lagði Charlotte í nótt.
Ef við vissum ekki betur, hefðum við haldið að sá stóri hefði verið undir áhrifum eiturlyfsins alsælu meðan á viðtalinu stóð. Í fyrsta lagi sækir hann mikið í snertingu og heldur utan um sjónvarpsmanninn allan tímann, sem er eiginlega dálítið vandræðalegt. Hann tyggur aftur og aftur hvað hann elskar allt og alla og er ógurlega jákvæður. Þetta eru tvö af algengustu einkennum sem merkja má á fólki undir áhrifum alsælu. Kannski að þeir ættu að láta Barnið pissa og sjá hvað kemur út úr því.
Efnisflokkar:
Barnalæti
,
Eiturlyf
,
Glen Davis
,
Magic
,
Rólegur
Wednesday, December 11, 2013
Indiana vann fyrstu lotu
Indiana (19-3) sendi meisturum Miami (16-6) smá skilaboð í nótt með því að hafa betur 90-84 í fyrsta einvígi liðanna í deildakeppninni. Leikurinn fór fram í Indiana, þar sem heimamenn eru taplausir í tíu leikjum.
Góðu fréttirnar eru að þessi frábæru lið mætast aftur næsta miðvikudag en þá verður leikið í Miami. Hérna fyrir neðan eru nokkrir tölfræðipunktar úr einvíginu. Þarna sjáið þið m.a. hvað varnarleikur Pacers er rosalega sterkur og hvernig Paul George gekk að dekka LeBron James.
Efnisflokkar:
Hágæðaskemmtun
,
Heat
,
It´s faaantastic
,
Ógnarstyrkur
,
Pacers
,
Paul George
,
Tölfræði
Tuesday, December 10, 2013
Mark Aguirre á afmæli í dag
Skorarinn skemmtilegi Mark Aguirre á afmæli í dag. Framherjinn lék 13 ár í deildinni og átti sín bestu ár með Dallas, en fleiri muna kannski eftir honum með meistaraliðum Detroit Pistons árin 1989 og 1990.
Aguirre var sem áður segir frábær skorari og margir vilja meina að það sé skandall að hann sé ekki búinn að fá sæti í Heiðurshöllinni. Hann hefur reyndar ekki einu sinni fengið treyjuna sína hengda upp í Dallas, þar sem hann skoraði að jafnaði um 25 stig í leik á rúmum sjö árum.
Fyrir tuttugu árum síðan var Aguirre að skora 29,5 stig að meðaltali í leik og aðeins Adrian Dantley hjá Utah var með hærra meðaltal (30,5).
Það er nokkuð skondið að skoða listann yfir stigahæstu leikmenn deildarinnar þarna fyrir 20 árum. Þar eru tæknilega níu af tíu stigahæstu mönnum deildarinnar minni framherjar (Ísmaðurinn spilaði bæði bakvörð og framherja).
Terry Cummings spilaði stöðu kraftframherja, en það er merkilegt að sjá ekki einn einasta bakvörð þarna á listanum.
Sagan segir að það hafi verið Aguirre sem lagði grunninn að kaupum Mark Cuban á Dallas Mavericks um aldamótin með því að koma á fundi með honum og Ross Perot, þáverandi eiganda félagsins.
Hérna fyrir neðan má sjá Aguirre sækja að Charles Barkley í Stjörnuleiknum árið 1988. Þetta var þriðji og síðasti Stjörnuleikur hans á ferlinum (´84, ´87).
Til hamingju með daginn, Mark.
Efnisflokkar:
Afmæli
,
Fret úr fortíðinni
,
Mark Aguirre
,
Mavericks
,
NBA 101
,
Pistons
,
Skorarar
Skot og skyssur frá 9. áratugnum
Stórfurðulegur þáttur í umsjón Marv Albert og Frank Layden forseta
og fyrrverandi þjálfara Utah Jazz. Níundi áratugurinn var yndislegur.
Efnisflokkar:
Fret úr fortíðinni
,
Klassík
,
Marv Albert
,
NBA 101
,
Tilþrif
Ó, þið ungu hetjur
Við kíktum til gamans á leik Philadelphia og Orlando frá því fyrir nokkrum dögum, svona út af öllu fjaðrafokinu sem var í kring um þennan leik. Þar gerðist það í fyrsta skipti að nýliðar í sitt hvoru liðinu næðu þrefaldri tvennu þegar Sixers vann 126-125 seiglusigur eftir tvíframlengdan og æsispennandi leik.
Þetta voru þeir Michael Carter-Williams hjá Philadelphia og Victor Oladipo hjá Orlando. Sérstaklega hefur Carter-Williams vakið áhuga okkar og aðdáun. Hann sló auðvitað í gegn í sínum fyrsta leik sem atvinnumaður eins og þið munið kannski.
Það er fullkomlega glórulaust að hugsa til þess hvað fær félög eins og Cleveland til þess að sleppa því að taka leikmann eins og Carter-Williams í nýliðavalinu.
Velja heldur sekk eins og aumingja Anthony Bennett, sem hefur aldrei komist í form og skýtur 22% utan af velli. Svona getur lífið verið furðulegt og ósanngjarnt.
Bennett er kandídat í að verða slakasti leikmaður sem valinn hefur verið númer eitt í sögu NBA, en við skulum vona að aumingja drengurinn nái sér á strik.
Oft hafa óveður gengið yfir Fíladelfíu þó spáin hafi verið góð. Vonandi verður breyting þar á núna. Liðið á helling inni og ætti að vera í flottum málum með Carter-Williams við stýrið í framtíðinni. Kannski var nýliðavalið árið 2013 ekki versta draft í sögu mannkynsins eftir allt saman.
Guð blessi tveggja metra leikstjórnendur.
Efnisflokkar:
Anthony Bennett
,
Magic
,
Michael Carter-Williams
,
Nýliðar
,
Sixers
,
Sóðaskapur
,
Tölfræði
,
Victor Oladipo
,
Þrennur
Josh "Red" Smith
Josh Smith er ekki að hata lífið með nýja liðinu sínu Detroit og er skotglaðari en nokkru sinni fyrr. Pistons gerði við hann 6,4 milljarða samning og hérna fyrir neðan sérðu dæmi um það sem félagið er að fá til baka fyrir fjárfestinguna, tæp 14 stig og tæpa 40% hittni - slökustu tölurnar hans síðan hann var á öðru ári 2005-06. Eins og skotkortið sýnir, er Smith bókstaflega rauðglóandi, þó ekki í algengustu merkingu orðsins.
Efnisflokkar:
Gildi og ákvarðanataka
,
Josh Smith
,
Múrsteinahleðsla
,
Pistons
,
Skotkort
,
Tölfræði
Friday, December 6, 2013
Fyrsta lestarferð Charles Barkley
Charles Barkley var svo óheppinn að vera á vakt á TNT sjónvarpsstöðinni í gærkvöld þegar hún sýndi beint frá leik Brooklyn og New York. Eins og flestir sem þetta lesa vita, hefur ekki verið mikill glans yfir leik New York-liðanna tveggja í haust og auðvitað stóð ekki á pillunum frá Charles Barkley:
"Ég skildi eftir tvo boðsmiða á leikinn á hótelinu mínu í gærkvöldi, en þegar ég kom niður í lobbí í morgun voru sex miðar á borðinu," sagði spéfuglinn.
Barkley er auðvitað annálaður sveitamaður og af því leikurinn var svo hundleiðinlegur, ákvað framherjinn íturvaxni að prófa eitthvað nýtt og skellti sér í sína fyrstu neðanjarðarlestarferð. Það er hægt að búa til sjónvarp um nánast hvað sem þessi snillingur tekur sér fyrir hendur.
Efnisflokkar:
Charles Barkley
,
Knicks
,
Nets
,
Skrítlur
,
TNT
Djúsari dagsins
Efnisflokkar:
Bætiefnabrjálæði
,
Djúsið
,
Eðlilegt
,
Honum leiðist ekki
,
Hrikalegheit
,
Líkamsþróttur er eftirsóttur
,
Óli Páls
,
Sælar stelpur
Flöskudagsklassík
Efnisflokkar:
Flöskudagsklassík
,
Klassík
,
Magic Johnson
,
Michael Jordan
,
NBA 101
Thursday, December 5, 2013
Tuesday, December 3, 2013
Gamalt fólk getur líka spilað körfubolta
Tim Duncan varð í nótt elsti leikmaður í sögu NBA deildarinnar til að bjóða upp á 20/20 leik þegar hann skoraði 23 stig og hirti 21 frákast í sigri San Antonio Spurs á Atlanta Hawks. Duncan, sem á stutt eftir í 38 ára afmælið, setti svo punktinn yfir allt saman með því að snudda niður sigurkörfunni í leiknum. Þessi maður.
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Á ögurstundu
,
Goðsagnir
,
Sigurvegarar
,
Spurs
,
Tim Duncan
Klisjufyrirsögn um Davíð og Golíat
Við skorum á ykkur að finna meiri hæðarmun á bakvörðum í NBA deildinni. Það er mjög sennilega ekki hægt, því hér er á ferðinni lægsti leikmaður í sögu deildarinnar á móti einum af þeim hærri sem spilað hafa leikstöðuna.
Tyrone "Muggsy" Bogues (160 sm) leikstjórnandi Charlotte Hornets, brunar hér fram hjá Earvin "Magic" Johnson (206 sm) hjá Los Angeles Lakers á fyrstu árum tíunda áratugar síðustu aldar. Þetta eru 46 sentimetrar ef stærðfræðin svíkur okkur ekki. Þetta telur, enda skiptust þeir á að fara illa hvor með annan á sitt hvorum enda vallarins, þá sjaldan að þeir dekkuðu hvor annan.
Efnisflokkar:
Hornets
,
Lakers
,
Leikstjórnendur
,
Magic Johnson
,
Margur er knár
,
Metabækurnar
,
Muggsy Bogues
Wilt-u koma í blak?
Efnisflokkar:
Fyrirbæri
,
Goðsagnir
,
Líkamsþróttur er eftirsóttur
,
Ruglað saman reitum
,
Wilt Chamberlain
Kevins-költið Willis
Moses Malone, Dennis Rodman, Ben Wallace, Kevin Love og Kevin Willis.
Þetta eru mennirnir sem hafa náð að hirða 15 fráköst eða meira að meðaltali í leik í NBA deildinni á síðustu 30 árum. Willis þekkja margir. Hann var upp á sitt besta í upphafi tíunda áratugarins þegar körfuboltatískubólan var sem stærst á Íslandi.
Atlanta-liðið hans átti marga stuðningsmenn hér á landi og á eflaust enn. Eitt af þessum költ liðum á Íslandi ef svo má segja. Spud Webb átti þar hlut í máli, einnig Dominique Wilkins, en Kevin Willis átti líka marga aðdáendur hérlendis. Við munum vel eftir því. Willis var almennt álitinn líkamlega sterkasti leikmaður deildarinnar ásamt Karl Malone. Þetta voru íþróttamenn í lagi.
Hérna er skemmtileg syrpa með tilþrifum frá Kevin Willis, sem lék í 11 ár með skemmtilegu liði Atanta Hawks. Þar spilaði hann meðal annars með Doc Rivers, núverandi þjálfara LA Clippers.
Þeir Kevin Willis og Dominique Wilkins voru líka þekktir fyrir að vera vel til fara.
Efnisflokkar:
Doc Rivers
,
Dominique Wilkins
,
Fötin skapa manninn
,
Fráköst
,
Fret úr fortíðinni
,
Hawks
,
Kevin Willis
,
NBA 101
,
Spud Webb
,
Tölfræði
Subscribe to:
Posts (Atom)



























