Monday, January 7, 2013

7. þáttur Hlaðvarpsins kominn í hús


Elskulegu lesendur, það er okkur sönn ánægja að tilkynna ykkur að 7. þáttur Hlaðvarpsins er kominn í hús eftir ómannúðlega langt hlé.

Viðmælandi Baldurs í Hlaðvarpinu að þessu sinni er Snorri Örn Arnaldsson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar og fara þeir félagar yfir mjög svo víðan völl í klukkutímalöngu spjalli.

Þeir skoða vandræðaganginn á Lakers, uppgang LA Clippers, meistaravonir Memphis og Stjörnunnar svo eitthvað sé nefnt.

Smelltu hér til að fara á Hlaðvarpssíðuna og velja milli beinnar hlustunar eða niðurhals.

Gute stunde.