Við erum handviss um að þetta er spurning sem allir spyrja sig þegar þeir setjast niður og ætla sér að skrifa um stöðuna á Los Angeles Lakers.
Ritstjórn NBA Ísland er þekkt fyrir að sjá glasið stundum hálftómt, en ef við ætluðum að fjalla um Lakers með þannig gleraugu á nefinu í upphafi ársins 2013 gætum við allt eins farið á sílaveiðar með handsprengju.
Það væri svo auðvelt að halda sig við 100 orð og drulla bara yfir þetta lið, en við ætlum að reyna að taka aðeins mýkri nálgun á þetta. Það er komið nýtt ár og svona.
Staðan á Lakers þegar tímabilið er um það bil að verða hálfnað er hreint ekki glæsileg.
Æðsta markmið liðsins síðustu daga hefur verið að reyna að koma sér yfir 50% vinningshlutfall, sem er auðvitað hlutur sem ætti að koma gjörsamlega að sjálfu sér með annan eins mannskap og Lakers hefur.
Eins og við vitum hafa hlutirnir hinsvegar ekki alveg þróast eins og við var búist í Lakers-landi.
Auðvitað var lagt upp með að vinna meistaratitil í haust eins og venjulega og þessar væntingar minnkuðu ekki þegar Steve Nash og Dwight Howard voru búnir að skrifa undir samninga við félagið.
Síðan hafa þetta verið eintóm vonbrigði og vesen.
Meistaratitill? Efsta sætið í Vesturdeild? Heimavöllur í úrslitakeppninni? Heimavöllur í fyrstu umferð? SÆTI í úrslitakeppninni? Nei, þessi markmið, sem ættu að heita sjálfsögð, eru ekki tímabær fyrir þetta Lakers-lið. Byrjið á að reyna að komast yfir 50% vinningshlutfall.
Eins og þeir vita sem fylgjast með gangi mála í NBA og þá sérstaklega í Vesturdeildinni vita, er 50% vinningshlutfall hvergi nærri nóg til að komast í úrslitakeppni. Oft þurfa lið að gera miklu betur til þess eins að ná áttunda sætinu, öfugt við það sem gengur og gerist í grátlegri Austurdeildinni.
Sem stendur er Lakers heilum þremur leikjum frá áttunda sætinu í Vesturdeildinni.
Þrír leikir er alveg slatti þegar keppnin hörð eins og hún er um úrslitakeppnisætið í vestrinu, en það vinnur með Lakers að liðið á næstum því 50 leiki eftir í deildinni fram á vorið og því er nægur tími til að snúa við blaðinu.
Spurningin er bara: Getur þetta Lakers-lið snúið við blaðinu?
Svarið er tvímælalaust já í okkar bókum. Sjáið bara jákvæðnina!
Hvar væruð þið ef þið hefðuð ekki NBA Ísland til að segja ykkur hvernig þetta fer allt saman. Lakers á eftir að komast í úrslitakeppnina og verða liðið sem engan langar að mæta þar, en þegar allt er talið, mun það ekki komast langt. Þar hafið þið það.
Við erum búin að skoða lið Lakers aðeins á síðustu dögum og líst ekkert á það frekar en öðrum gagnrýnendum. Eins og margoft hefur komið fram erum við engir körfuboltasérfræðingar, en meira að segja okkar takmarkaða þekking á leiknum leiðir nokkra augljósa hluti í ljós.
Langstærstu atriðin sem eru að hvelja Lakers eru meiðsli, ömurlegur varnarleikur, elli kelling og lítil (engin) breidd. Taktu þetta og bættu því við að liðið er með nýjan þjálfara, nýjan mannskap og lélegan móral og dæmið er ekki hið glæsilegasta.
Þegar við settumst á bak háa hestinum í haust, fengum okkur sopa af Hatorade og skrifuðum að þetta Lakers-lið hefði ekki það sem til þyrfti til að vinna meistaratitil næsta vor, gerðu okkar svörtustu vonir ekki ráð fyrir svona skitu eins og liðið hefur verið að sýna að undanförnu.
Við gerðum að vísu heldur ekki ráð fyrir því að Steve Nash, Pau Gasol og Dwight Howard yrðu ýmist í sparifötunum eða spilandi á 40% styrk í allan vetur, jafnvel þó þjálfaraskiptin kæmu okkur ekkert á óvart.
Ekki halda að við séum að búa til afsakanir fyrir Lakersliðið þó við minnumst á þessi meiðsli, en þó lítið sér um það fjallað, er Pau Gasol ekki bara meiddur, heldur handónýtur.
Eins er það augljóst að Dwight Howard, eins takmarkaður leikmaður og hann er nú, er heldur ekki búinn að ná nema broti af fyrri styrk eftir þennan bakuppskurð.
Bættu svo við þetta meiðslum nafnanna Steve Nash og Blake og við erum komin með stóran hluta af ástæðum þess að Lakers er í bullandi, bullandi vandræðum.
Eins og áður sagði höfum við verið að fylgjast dálítið með Lakers að undanförnu og í kjölfarið tókum við niður nokkra punkta sem við veittum athygli, ekki síst í tapleikjunum tveimur gegn Clippers og Nuggets.
* Mike D´Antoni er ágætisþjálfari, en þessi mannskapur sem hann hefur úr að moða hjá Lakers hentar honum alls ekki nógu vel. Allir muna eftir því hve frábært Phoenix liðið hans var á sínum tíma, en það var allt öðru vísu upp byggt en liðið sem hann er með í höndunum núna.
D´Antoni er eins og maður sem ætlar að fara að skipta um tölu á skyrtunni sinni með hjólsög og fræsara. Það er fínt að eiga hjólsög og fræsara, en þú ert ekkert að fara að skipta um tölu með þessum græjum.
* Kobe Bryant hefur verið að skila fallegum sóknartölum í vetur, en þó enginn þori að segja það eða skrifa, er varnarleikurinn hans í besta falli grín. Hvort sem það stafar af því að hann er að spara orkuna fyrir sóknarleikinn eða hreinlega hefur ekki áhuga á að spila vörn, skal ósagt látið, en Bryant er að sýna eins slæmt fordæmi og hægt er með þessu.
Leiðtogi liðsins á að sýna gott fordæmi og spila hörkuvörn, en hann gerir það ekki nema kannski á síðustu fimm mínútum leikja og það endurspeglar eitt stærsta vandamál Lakers-liðsins. Fyrir utan þetta, efumst við enn stórlega um hæfileika og áhuga Kobe Bryant á að leika fallega við hina krakkana.
Kobe á það enn til að leiða lið sitt til sigurs, en það gerir hann þá eingöngu verklega og upp á sitt einsdæmi. Hann er hinsvegar líklegri til að grafa sig í gremju og fýlu og skamma liðsfélagana en að rífa þá upp á rassgatinu og til sigurs.
* Dwight Howard hefur valdið miklum vonbrigðum í vetur. Hluta af þessum vonbrigðum má rekja til þess að hann er ekki heill heilsu, en þar fyrir utan er Howard bara með meingallað hugarfar. Hann skortir leiðtogahæfileika, drápseðli, hörku og seiglu og er líklegri til að fíflast eða fara í fýlu eins og Bryant, en að leiða félaga sína áfram.
Við höfum sagt það áður og fullyrðum enn á ný. Dwight Howard verður aldrei NBA meistari ef hann þarf að bera megnið af hlassinu hjá liðinu. Hans besta von um að verða meistari er þeim annmörkum háð að hann verði í besta falli þriðji eða fjórði besti leikmaður liðsins. Hann vantar einfaldlega hugarfar og hæfileika til að gera betur.
*Pau Gasol er í klessu. Það hefur komið fram að hann er að drepast í báðum fótum og það leynir sér ekkert. Hann er seinn og það er ekki hægt að lauma glæru undir skóna hjá honum þegar hann hoppar hæst.
Í leiknum gegn Clippers á dögunum tók Gasol tvö þriggja stiga skot að hætti Channing Frye og klikkaði illa á báðum enda ekki með neinar lappir. Gasol stendur fyrir utan og tekur langskot meðan Dwight Howard er að fá boltann niðri á póstinum þar sem lítils er að vænta. Skrifast á þjálfarann.
Varnarleikur Gasol á Blake Griffin var í besta falli broslegur. Það skrifast ekki á meiðsli að Gasol skuli leyfa Griffin að böðlast með sig undir körfuna og skora í andlitið á sér, í stað þess að gefa honum skref eða tvö fyrir utan og freista þess að láta hann skjóta eða keyra.
Ofan á þetta er Mike D´Antoni að hræra í spilatímanum hjá honum og alltaf skal Pau Gasol fá alla gagnrýnina þegar eitthvað er að í Los Angeles.
Í stað þess að þakka Gasol fyrir titlana sem Lakers vann árin 2009 og 2010, hefur myndast hefði fyrir því að drulla yfir Gasol út af öllu. Ef Lakers gengur illa eða tapar, ef fólk finnur ekki stæði fyrir utan Staples Center eða poppkornið er flatt - er það Pau Gasol að kenna.
Jú, jú, Gasol á það til að vera óþægilega mannlegur, lúinn og slappur, skorta drápseðlið, en það fer óstjórnlega í taugarnar á okkur hvað það er alltaf honum að kenna þó Kobe Bryant nenni ekki að spila vörn eða þó Dwight Howard sé ofmetnasti miðherji sögunnar. Plís.
Okei, Gasol er búinn að spila eins og aumingi í vetur, en það er af því hann er meiddur. Það eina gáfulega í stöðunni er að parkera honum endanlega um óákveðinn tíma, en D´Antoni þorir því ekki af því hann hefur engan annan og ætlar því að blóðmjólka Gasol til að halda vinnunni.
Það er ljóst að Pau Gasol verður skipt frá Lakers ef félagið fær eitthvað í staðinn, en þau skipti eiga aldrei eftir að koma vel út, jafnvel þó ljóst væri að Lakers tæki ekki fleiri titla með Gasol í svo stóru hlutverki. Það hefði unnið þriðja árið í röð árið 2011 ef svo hefði verið.
Það breytir því ekki að vonir stuðningsmanna Lakers um að liðið verði miklu betra þegar það losnar við Gasol og fær einhvern annan í staðinn eru draumkenndar og barnalegar.
* Steve Nash er að verða fertugur, heilsu hans fer hrakandi og hann er næstum því verri varnarmaður en hann er góður sóknarmaður.
*Aukaleikarar Lakers eru hrópandi lélegir. Nærtækt dæmi um þetta er að liðið hefði líklega unnið granna sína í Clippers á dögunum ef Jodie Meeks (3-13 í skotum, 2 af 8 í galopnum þristum) hefði spilað eins og miðlungsleikmaður.
* Ron Heimsfriður Artest að skila skárstu tölum sem hann hefur verið með frá því hann kom til Lakers, en allt, allt, allt of oft er það hann sem er að reyna að skjóta Lakers inn í leiki á lokasprettinum og það þá með einu af þeim sex þriggja stiga skotum sem hann er að reyna að meðaltali í leik í vetur.
Ef þú heldur með liði sem treystir á sóknarleik frá Ron Artest í lok leikja, eru ágætislíkur á því að það sé með 45% vinningshlutfall og ekki inni í myndinni í úrslitakeppninni. Viltu giska á hvað Lakers er með hátt vinningshlutfall?
* Varnarleikur vinnur titla. Það er engin klisja. Lakers þarf líklega ekki að hafa neinar áhyggjur af því að vinna titil í sumar, en eins og við komum inn á í upphafi þessa pistils, byrjar þetta allt og endar í vörninni hjá Lakers eins og öðrum liðum.
Það var rosalega átakanlegt að horfa á varnarleikinn hjá Lakers í tapinu gegn Denver í gærkvöldi. Sóknarleikur liðsins hefur virkað stirðbusalegur og tilviljanakenndur á tíðum í vetur, en hann er ekki vandamál liðsins hvernig sem á það er horft. Það er vörnin.
Lakers þarf tíma til að bæta hjá sér varnarleikinn og mun gera það, en líkurnar á því að hann verði nógu góður eru hverfandi.
Sjáðu bara lykilmenn liðsins í vörninni:
-Steve Nash hefur aldrei verið góður varnarmaður, en er nú að koma til baka eftir meiðsli og er að verða fertugur. Heldurðu að varnarleikur hans hafi batnað?
-Við sögðum ykkur frá varnarleik Kobe Bryant áðan. Hann er allt of sjaldan til staðar og sú staðreynd að Bryant sé áskrifandi af sæti í varnarúrvali deildarinnar er líklega mesti skandall sem viðgengst í deildinni síðan dripplauglýsingin fyrir jólin (hún er einmitt sönnun þess að Satan er til og er fullfær um að gera okkur lífið leitt þegar hann er í stuði - eða fannst þér bara allt í lagi og krúttlegt að sjá þessa auglýsingu 18.000 sinnum á sólarhring?).
-Ron Artest á enn sína spretti sem varnarmaður, en hann er undir meðallagi í að verjast mönnum í sinni stöðu í dag af því hann hefur bæði tapað skrefi og svo er hann orðinn svo massaður og þungur að hann á ekki séns í fljótari þrista úti á velli.
Ron Ron fer betur að slást við fjarka í teignum, en meira að segja þar vantar hann þyngd og sentimetra til að gera fullt gagn.
-Pau Gasol erum við líka búin að segja ykkur frá. Hann er ekki sá nettasti þegar hann er heill, en þið getið ímyndað ykkur hvernig hann stendur sig í vörninni þegar sóknarleikurinn hans er í molum vegna meiðslanna. Hann er í besta falli nautabani eins og Kobe og Nash.
-Dwight Howard gerir bara þrjá hluti vel og varnarleikur er einn af þeim. En Howard er líka með veikleika þegar kemur að varnarleiknum. Hann er of gjarn á að láta menn gabba sig upp af fótunum með gabbhreyfingum af því hann vill verja öll skot sem tekin eru og hann er enn að fá á sig allt of mikið af klaufavillum.
Eins og okkur er oft í nöp við Howard, verðum við þó að segja að dómarar í deildinni eru allt of gjarnir á að flauta á Howard og við skiljum stóran hluta af gremju hans vegna þessa.
Það er glæpur í nútíma NBA að vera stór og Howard er allt of oft refsað fyrir það.
Áðurnefnd meiðsli eru ekki að hjálpa Howard í varnarleiknum í vetur en það er ljóst að hann fær sennilega ekki mörg atkvæði í kjörinu á varnarmanni ársins í vor.
Það er heldur ekki öfundsvert fyrir aumingja Howard að vera sífellt að fá menn í fangið sem skokka framhjá þeim Kobe Bryant og Steve Nash úti á velli. Erfitt hlutskipti, vægast sagt.
Já, krakkar. Það er ekki tekið út með sældinni að vera 2013 útgáfan af Los Angeles Lakers. Við erum þegar búin að greina ykkur frá niðurstöðunni úr þessari úttekt á liðinu.
Eins og staðan er í dag, þegar um 50 leikir eru eftir af deildakeppninni, sjáum við ekki bjartari framtíð fyrir Lakers en að liðið detti út í fyrstu umferð úrslitakeppninnar, ef það á annað borð nær að haltra þangað.
Það er útlit fyrir að aðeins eitt lið frá Los Angeles nái að gera eitthvað í úrslitakeppninni í vor og það verður sennilega ekki liðið í gulu búningunum eins og venjulega, heldur litla, ljóta systirin LA Clippers.
Hvernig við metum möguleika Clippers, ætlum við að segja ykkur í næsta pistli, seinni helmingnum af LA Sögu NBA Ísland í janúar 2013. Sá pistill er væntanlegur síðar í dag eða í kvöld.