
Einmitt þess vegna verða bloggfærslur spúsu hans varla til að gleðja þjálfarateymi LA Lakers. Lamar Odom er frábær leikmaður. Hefur hæfileika sem fáir - ef einhverjir - aðrir leikmenn í hans stöðu búa yfir í deildinni.
Spilamennska hans er þó ekki stöðugri en vindmælarnir á Stórhöfða í Vestmannaeyjum.
Hjálpar varla slíkum atvinnumanni í íþróttum að vera giftur Kardashian-konu. Og enn síður ef hann ætlar í súkkulaðitrekant með henni og kassa af Hershey´s.