Thursday, January 7, 2010

Hér voru að berast tölur úr suðvesturkjördæmi

























Í dag voru birtar næstsíðustu tölur í vinsældakosningunni í byrjunarliðin í stjörnuleiknum sem fram fer í Dallas í næsta mánuði.

Lokatölur verða birtar eftir nákvæmlega hálfan mánuð og þá kemur í ljós hvaða kappar verða í byrjunarliðum Austur- og Vesturdeildar.

Tölurnar í dag eru kjánalegar og slæm tíðindi fyrir þá sem taka stjörnuleikinn alvarlega. Þannig er útlit fyrir að Tracy McGrady muni verða kosinn í byrjunarlið Vesturdeildar þrátt fyrir að hafa spilað aðeins færri mínútur sem atvinnuknattspyrnumaður í vetur en körfuboltamaður.

Þá er ljóst að mikið þarf að gerast ef Allen Iverson á ekki að vera í byrjunarliði Austurdeildarinnar.

Hvað er að fólki? Þetta er ekki beint traustsyfirlýsing fyrir yngri stjörnurnar í NBA deildinni.

Á meðan haltrandi dráttarklárar eins og McGrady ( 3 stig að meðaltali í sex leikjum) og Iverson (14 stig, 4,5 stoðsendingar í 13 leikjum) eru við það að ná byrjunarliðssæti eru menn eins og Zach Randolph (20 stig, 11 fráköst) og Chris Kaman (20 stig, 9 fráköst) ekki einu sinni á atkvæðaseðlinum!

Þetta álíka gáfulegt og að Davíð Oddson myndi gefa kost á sér í formannsslag í Sjálfstæðisflokknum og myndi rúlla Bjarna Ben og Þorgerði Katrínu upp með..... Nei, ok, kannski ekki gott dæmi....

Hvað um það. Smelltu hér ef þú hefur áhuga á að skoða tölurnar sem birtar voru í dag.