Friday, December 11, 2009

Gleðistund í beinni frá Sacramento


Hvað á maður að gera þegar maður er með næst lélegustu aðsóknina í NBA - á heimavelli sem fyrir nokkrum árum var einhver mesta ljónagryfja í deildinni - og liðið þitt verður í beinni útsendingu á landsvísu í fyrsta sinn einhver tvö ár?

Nú maður selur auðvitað bjórinn á einn dollara og kveikir aðeins í liðinu!
Maloof-bræður eru með þetta.

Það verður því gleðistund fram að hálfleik í Arco höllinni í Sacramento þegar liðið tekur á móti Washington á miðvikudagskvöldið.