Thursday, April 11, 2013

Kobe Bryant hendir körfuboltum ofan í körfur


Öldungurinn grami Kobe Bryant skoraði 47 stig í Portland í nótt og ætlar greinilega ekki að láta sitt eftir liggja í kapphlaupinu um 8. sætið í Vesturdeildinni. Einhver flinkur stuðningsmaður Lakers lét það ekki eftir sér að klippa þessa árás hans saman í nettan pakka handa ykkur.



Eins og tryggir og glöggir lesendur NBA Ísland hafa tekið eftir, hefur ekki verið mjög mikið að gerast á síðunni síðustu daga. Til að gera langa sögu stutta er það af því ritstjórnin dvelur nú á heilsuhæli til að ná tökum á langvarandi veikindum.

Það verður því eitthvað aðeins minna að gerast hérna inni á síðunni í einhverja daga í viðbót, en svo verður allt sett á fullt aftur þegar komið er inn í úrslitakeppnina. Við vonum að þið sýnið þessu skilning - þið gerið það venjulega. Blóm og kransar afþakkaðir.

Ritstjórnin.