Enginn leikmaður í NBA deildinni stendur eins vel undir gælunafni og Gerald Wallace hjá Brooklyn Nets, sem er einfaldlega kallaður Crash (ísl. Hnjaskur) vegna þess hve oft hann á það til að brotlenda illa á flugferðum sínum um teiga deildarinnar.
Hér fyrir neðan er myndband af nýjasta útspili hans frá í nótt, en það er reyndar ekki langt síðan við sýndum ykkur mynd af einni brotlendingunni hans. Vonandi er kappinn ekki illa meiddur eftir skellinn.