Wednesday, November 3, 2010
John Wall vann körfuboltaleik
Washington er búið að vinna leik. Það tókst í þriðju tilraun og fyrsta heimaleiknum. Gott fyrir Wizards að fá Philadelphia í heimsókn í opnunarleiknum heima.
Sixers er 0-4 og er ekki alveg að gera sig.
John Wall hélt áfram að vekja hrifningu og skilaði 29 stigum, 13 stoðsendingum og 9 stolnum boltum (og reyndar 8 töpuðum boltum).
Mjög skemmtilegur og spennandi leikmaður þar á ferð. Búinn að skila 31 stoðsendingu í fyrstu þremur NBA leikjunum sínum, sem ku vera metjöfnun hjá nýliða (Damon Stoudamire og Jamaal Tinsley).
John Wall var auðvitað hetjan hjá Wizards í leiknum en það var bara Cartier Martin að þakka að liðið náði í framlengingu. Ótrúlegur þristur guttans skömmu fyrir lok venjulegs leiktíma tryggði Wiz framlengingu.
Alltaf svo gaman að sjá svona öskubuskuævintýri.
Annars var ekkert skrítið að Washington næði sigri í leiknum. Þetta var fyrsti leikurinn sem Irine Pollin mætir á í vetur og það er auðvitað ávísun á sigur.
Irene er ekkja Abe heitins Pollin, fyrrum eiganda Wizards. Margir muna eftir þeirri gömlu þegar hún var fulltrúi Washington í lottóinu þegar félagið hreppti fyrsta valréttinn í sumar.
Gott ef sú gamla var ekki í sömu gulu lukkudragtinni og hún klæddist í lottóinu í sumar.
Við erum svo miklar dúkkulísur að við höfðum gaman af því að sjá kerlinguna landa John Wall eftir allar hörmungarnar sem dunið höfðu á félaginu.