Wednesday, November 3, 2010
John Stockton gaf ansi marga körfubolta fyrir 20 árum síðan
Það hefur ekki farið framhjá okkur frekar en öðrum NBA áhugamönnum hvað Rajon Rondo er að spila vel með Boston í upphafi leiktíðar. Pilturinn er með tæpar 17 stoðsendingar að meðaltali í leik í fyrstu fjórum leikjum sínum. Ekki hægt að kalla það neitt annað en Stockton-legt.
Gaman að rifja það upp í framhaldinu að um þessar mundir eru einmitt 20 ár síðan John Stockton toppaði sig í stoðsendingunum með Utah Jazz. Á árunum 1989-91 var Stockton með 14,5 og 14,2 stoðsendingar að meðaltali í leik - hæsta meðaltal sögunnar.
Í vor verða liðin 20 ár frá því Stockton setti metið yfir flestar stoðsendingar á einu tímabili (1164). Hann er eini maðurinn í sögunni sem hefur náð 1100 stoðsendingum á tímabili og gerði það raunar fimm ár í röð þegar hann var upp á sitt besta.
Það var ekki óalgengt að Stockton ætti fimm leiki í mánuði með 20 stoðsendingar eða meira. Okkur flýgur einn leikur í hug frá þessu tímabili þar sem Stockton skoraði 20 stig, gaf 28 stoðsendingar og stal 8 boltum.
Stockton gaf 15.806 stoðsendingar á ferlinum. Aðeins þrír aðrir hafa náð yfir 10.000, þeir Magic Johnson, Mark Jackson og Jason Kidd. Sá síðastnefndi fer yfir 11.000 eftir nokkra daga en þarf líklega að spila langleiðina til fimmtugs til að komast á toppinn.
Það er ekki útilokað að einhverjum takist aftur að skora 100 stig í leik eða slá stigametið hans Jabbars gamla.
Stoðsendingamet John Stockton verður aldrei slegið.
Það er bara þannig.