Thursday, November 11, 2010

David Lee spilaði körfubolta sem gestur í MSG


David Lee átti góða endurkomu í Madison Square Garden í New York í nótt. Hann lék með Knicks fyrstu árin sín í deildinni en gekk í raðir Golden State Warriors í sumar.

Lee var klappað lof í lófa í MSG og hann þakkaði stuðningsmönnum New York fyrir kveðjurnar með því að fara fyrir Warriors í 122-117 sigri á Knicks. Skilaði 28 stigum og 10 fráköstum.

Tímabilið fer ekki sérstaklega af stað hjá New York, þar sem menn voru farnir að leyfa sér að tala um að stefna í úrslitakeppnina. Gæti reyndar endað með því að 30 sigrar dugi til að komast í úrslitakeppnina í austrinu.

Golden State er hinsvegar með mjög óvænta 6-2 stöðu og fer vel af stað. Don Nelson hlýtur að snúast í hringi í gröf sinni.