Friday, January 1, 2010

Vopnajól í höfuðborginni




































Við erum kannski búin að borða allar steikurnar, opna alla pakkana og skjóta upp flugeldum, en það eru enn jól, fjandakornið!

Þess vegna er ljótt að lesa frekari dramatík um meint vopnaskak leikmanna Washington Wizards. Ekki beinlínis hátíðarbragur á höfuðborgardrengjunum.

Þeir mega svo sem alveg geyma byssur í skápunum sínum og sveifla þeim við innheimtu spilaskulda okkar vegna. Við höfum þá eitthvað að dunda okkur í Photoshop ef okkur leiðist eftir kalkúnsátið.