Thursday, January 14, 2010

Bölvunin heldur áfram - Griffin með meira meiddi

























Til að gera langa sög stutta, spilar Blake Griffin ekki einn leik með LA Clippers á þessari leiktíð. Í dag kom í ljós að meiddið hans reyndist stærra og meira en útlit var fyrir. Hann hefur því lokið keppni á sínu fyrsta tímabili, sem þó byrjaði aldrei almennilega.

Þetta er svo lygilegt að það er varla hægt að tala um það. Bölvunin sem hvílir yfir LA Clippers er ekki á neinu undanhaldi. Svo mikið er víst.

Við sem vorum farin að hlakka til að sjá Griffin spila. Það sem við sáum með honum á undirbúningstímabilinu lofaði ágætlega góðu - og þó erum við ekki vön að missa okkur í nýliðaskrumi. Amk ekki fyrr en þeir sýna eitthvað í alvörunni.