Tuesday, December 1, 2009

Verið velkomin


Við ættum að bölva Facebook aðeins meira....

Það eru komnir nokkrir lesendur á þessa síðu núna. Fagnaðarerindi NBA Ísland var borið út á Facebook á síðasta degi nóvembermánaðar og fólk virðist hafa tekið þessu ágætlega - amk á Facebook.

Flestir sem þáðu boð fésbókar kíktu hérna í heimsókn og megi þeir staldra við sem lengst.

Þá er ekki annað en að hefjast almennilega handa við að skrifa. Allir hér á ritstjórn NBA Ísland eru komnir í gríðarlegt jólaskap, byrjaðir að hengja upp skraut og baka kökur.  Við fengum líka svínaflensusprautu í dag. Þá vitið þið það.