Okkur hafa borist nokkrar fyrirspurnir um leiðindamál glæpadómarans
Tim Donaghy, sem lauk fyrir skömmu afplánun fyrir óæskilega spilamennsku tengda mafíunni ofl.
Skemmst er frá því að segja að við höfum ekki geð í okkur til að eyða plássi í þessa rottu. Hann tók þá ákvörðun að gefa út bók eftir að hann losnaði úr grjótinu og þar er hann kastandi skítasprengjum í allar áttir.
Þetta er eitt af þeim málum sem við höfum ákveðið að sópa undir teppi og láta það vera þar. Við viljum heldur eyða púðri og dálksentimetrum í misgáfulega umfjöllum um leikinn fagra. Menn eins og Donaghy geta bara farið og rifist á spjallinu á barnalandi.