Sunday, December 19, 2010

Tryllir


Góðar Víbrasjónir


Af innmat og álitlegri tölfræði


Það ætti að vera löngu ljóst að við fáum ekki nóg af Blake Griffin hérna á NBA Ísland. Höfum á tilfinningunni að lesendur hafi líka gaman af nýliðanum hrikalega hjá LA Clippers.

Griffin veit fátt skemmtilegra en að troða boltanum mjög fast í andlitið á fólki sem er að þvælast fyrir honum í teignum.

Hann hefur líka gefið sagnorðinu "slátra" alveg nýja merkingu eftir að hann tróð yfir hinn rússneska Mozgov hjá Knicks forðum (sjá mynd).

Það var ekki beint troðsla, en upp fór Griffin og það svo hátt að hann nuddaði þessum líkamshluta sem kenndur er við innmat úr sauðfé í andlitið á andstæðingi sínum.

En Griffin er ekki bara háloftafugl og troðari. Það vill nefnilega svo til að síðan í umræddum leik gegn New York þann 20. nóvember síðastliðinn, hefur Griffin verið með tvöfalda tvennu í hverjum einasta leik. Það eru fjórtán tvöfaldar tvennur í röð.

Ekki bara það, heldur hefur Griffin verið með að minnsta kosti 20 stig og 15 fráköst í þremur síðustu leikjum sínum og er aðeins fimmti nýliðinn á síðustu 35 árum til að skila þremur slíkum í röð. Kíktu endilega á leikjalistann hans Griffin og haltu áfram að fylgjast með pilti. Það er ekkert leiðinlegt.

Hér fyrir neðan getur þú svo rifjað upp troðsýninguna hans Griffin gegn New York fyrir mánuði. Svona gaurar koma ekki inn í deildina á hverjum degi. Kemp-Shaq-Amare-Griffin osfv.

Saturday, December 18, 2010

Körfuboltamenn skipta um búninga


Megum við kynna félagaskiptin "Úr Öskunni í Eldinn árið 2010"

Status Ársins 2010


Tilþrifin í nótt (17.12.10)


Ansi mörg flott tilþrif í nótt. Blake Griffin fær efsta sætið fyrir liprar 360 gráður, en við hefðum sett peninginn á LaMarcus Aldridge yfir Michael Beasley (#2). Klárlega bestu tilþrifin í nótt.

Jólagjöfin í ár #2


Yao Ming er merkilegt nokk með eins og eitt meiddi í viðbót


Beljujól


Meira jólaefni. Að þessu sinni frá Bulls. Rosalegt.
Flott innkoma hjá Scottie Pippen. Boozer klárlega bestur.

Amare & Amber


Friday, December 17, 2010

Róum okkur, NY Post


Í beinni á Stöð 2 Sport á miðnætti


Manuwar er enn miskunnarlaus (Reggie Miller alert - lækkaðu)


Er þér sama þó ég sé með fótinn í kokinu á þér?


Pierce fagnar































































































Love-Lee-Darling


Þeir fáu sem nenntu að hafa fyrir því að svara þessari asnalegu jólagetraun sem við settum upp í gær, svöruðu flestir rétt.

Það hefur kannski staðið í yngri kynslóðinni hver sá gráhærði var á myndinni. Það er reyndar fínt. Að sjá mynd af þessum manni boðar ekkert annað en bölvuð vandræði og þú græðir ekkert á því að þekkja hann. Við lofum að fara ekki meira út í pólitík.

Það besta sem kom út úr þessari fáránlegu myndgátu var að upp frá henni fengum við í fyrsta skipti tölvupóst frá áberandi drukknum lesanda. Það gladdi okkur óstjórnlega og vonandi er þetta  ekki síðasti pósturinn þeirrar tegundar sem kemur í innhólfið.

Fólk er alltaf að hafa samband annað slagið og lýsa yfir ánægju sinni með NBA Ísland og það gleður okkur mikið. Við eigum okkur ekkert líf eins og vefurinn ber með sér og því þykir okkur mjög vænt um að fá pósta með svona góðum anda.

Haldið endilega áfram að senda skemmtilega pósta og nota like takkann. Það er ógeðslega gaman og hjálpar til við að breiða út fagnaðarerindið.

Takk fyrir okkur, krakkar. Þið eruð frábær.

Sheed kemur öllum í jólaskap


Thursday, December 16, 2010

Now show´em them abs


Chicago gengur illa að halda mönnum heilum til að spila körfubolta


Þú ert væntanlega búinn að sjá fréttirnar um Joakim Noah, miðherja Chicago Bulls.

Pilturinn þarf í uppskurð vegna meiðsla á fingri og talið er að hann verði frá keppni í allt að tíu vikur.

Það er í raun ekkert hægt að segja við þessu annað en fokk.

Ætlar enn eitt tímabilið virkilega að fara í vaskinn hjá Bulls út af meiðslum? Fyrst Carlos Boozer og nú Noah. Og gleymum því ekki að Derrick Rose er lurkum laminn líka.

Chicago fær ekki meiri slaka frá stuðningsmönnum sínum. Liðið var grátlegt í allt of langan tíma eftir Krist og við tók langt tímabil þar sem það var bara efnilegt.

Nú er búið að sprengja þetta upp og byrja upp á nýtt. Nú eru alvöru menn til staðar, kjarni sem byggður er á Rose, Noah og Boozer.

Nú á þetta lið að byrja að vinna og komast upp úr fyrstu og jafnvel annari umferð í úrslitakeppninni.

En þá þurfa menn auðvitað að halda heilsu. Við skulum vona að Bulls taki meiðslavesenið sitt út á fyrriparti þessarar leiktíðar og komi öskrandi heilt til leiks í úrslitakeppninni. Við þurfum á því að halda. Þetta er bara skemmtilegt lið.

Paul Pierce er frekar leiðinlegur körfuboltamaður


Af virðingu við lesendur og umfangsefnið reynum við að sleppa því að bölsótast út í leikmenn í NBA deildinni.

Drekkum helst ekki andúðarelexírinn nema kannski þegar leikmenn eru ekki að vinna fyrir kaupinu sínu.

Einn er þó sá leikmaður sem fer öðrum fremur í taugarnar á okkur.

Það er Paul Pierce.

Ekki misskilja, Pierce er frábær spilari og í raun stórlega vanmetinn úrvalsleikmaður. En mikið óskaplega er auðvelt að láta hann fara í taugarnar á sér.

Þannig skemmdi hann alveg fyrir sér í nótt þegar hann kláraði Knicks með körfu þegar innan við sekúnda var til leiksloka. Mjög flott hjá honum.

En við þurftum í framhaldi af því að horfa á hann ögra hverjum einasta áhorfanda í Madison Square Garden með því að skokka í hring á vellinum og hneigja sig hæðnislega. Svo kemur viðtalið við Doris Burke.

Pierce er með rödd sem í besta falli minnir á sæljón um fengitíma og er með glott sem öskrar "Ég er um það bil vanasti maður í sögu mannkynsins."

Þá eru ótalin hjólastólaepisódin hans og flopp. Vá, hvað aumingja drengurinn er óþolandi. Við höfum fengið fullt af Celtics-mönnum til að viðurkenna það. Pierce er svo leiðinlegur leikmaður að það kostar okkur gríðarlega fyrirhöfn að njóta þess að sjá hann spila. Það verður ekki gaman fyrr en á vorin og sumrin þegar allt er undir og þá er hann vanur að skila sínu, helvískur.