Thursday, February 13, 2014

LeBron James er alveg sama


LeBron James skoraði fyrstu flautukörfuna sína á ferlinum gegn Golden State Warriors í Oakland fyrir nokkrum árum, þá sem leikmaður Cleveland. Hann endurtók þetta í nótt þegar hann sallaði 36/13/9 leik og sigurkörfu í andlitið á Steph Curry og félögum í Warriors. Þetta var sjöunda flautukarfan hans LeBron James á ferlinum.

Það er engu líkara en James sé aftur að minna á sig í MVP-umræðunni, sem hefur eingöngu snúist um Kevin Durant síðustu vikur. Þetta er svo fallegur leikur. Bújakasja!