Monday, November 11, 2013
Saga af Larry
Paul George, stórstjarna Indiana Pacers, sat fyrir svörum hjá tímaritinu Slam fyrir nokkru síðan og var meðal annars spurður út í yfirmann sinn Larry Bird. Við höfum alltaf svo lúmskt gaman af svona sögum, hvort sem þær eru lygi eða ekki.
SLAM: "I believe you had talked about seeing Larry (Bird) shoot in the gym."
Paul George: "He picked a ball up that had rolled over. He rolled up his sleeves and made about 15 in a row and just walked out like nothing just happened. It was the craziest thing I’ve seen."
SLAM: "How did you and the rest of the team react?"
Paul George: "We were speechless. We didn’t know whether to keep shooting or just to end practice. It was sweet, man."
Auðvitað er hann ennþá með þetta, gamli sveitalúðinn. Og sá er að verða búinn að byggja upp sterkt og skemmtilegt lið á heimaslóðunum í Indiana. Ekki hægt annað en að halda með honum. Eitt af því fáa sem hann á eftir að gera á glæsilegum ferlinum er að vinna titil sem skrifstofumaður. Megi það lukkast hjá honum.
Efnisflokkar:
Allir að halda sér
,
Dagblöð og tímarit
,
Larry Bird
,
Netbrennur
,
Pacers
,
Paul George
,
Viðtöl