Monday, October 7, 2013
Örlagahóran
Hún er hávaxin og hörkudugleg, landsliðskona Bandaríkjanna í blaki.
Kannski - vonandi - voru foreldrar hennar fullir þegar presturinn spurði: "Hvað á barnið að heita?"
Látum okkur sjá, hugsaði pabbinn, hvernig get ég tryggt að dóttir mín verði annað hvort vændiskona eða nektardansmær þegar hún nær átján ára aldri.
Jú, með því að skíra hana Destinee Hooker auðvitað.
Þetta er svo glórulaust nafn að það þætti ótrúverðugt nafn á súludansmey í gamanmynd með Wayans-bræðrum. Aumingja stelpan.
Foreldrar hennar hljóta að hata hana. Innilega.
Eins og þið sjáið á myndinni er engin táfýla af hárinu á henni Destinee. Kærastinn hennar nær henni varla upp í geirvörtu. Kannski heitir hann Geir Vörtu, svona til að vega upp á móti kærustunni. Það er ekki hægt að ljúga upp á svona fólk.
Efnisflokkar:
Dreptu okkur ekki
,
Eðlilegt
,
Mannanafnanefnd
,
Og nú að allt öðru