Heiðurshallarmeðlimurinn og stórskyttan Chris Mullin hoppaði inn í þriggja stiga skotkeppni sem haldin var í æfingahúsnæði Sacramento Kings á dögunum. Skemmst er frá því að segja að hinn fimmtugi Mullin rúllaði þessu upp eins og við var að búast.
Hitti ekki nema 14 af 15 skotum reyndar.
Gaman að sjá skotið inn í þetta stuttum viðtölum við tvo af núverandi leikmönnum Kings og þá heyrum við líka aðeins í Mitch Richmond, fyrrum leikmanni Kings sem kallaði ekki allt ömmu sína í greininni. Dásamlega skemmtilegt að sjá svona.