Friday, February 10, 2012

KR-Stjarnan og Lin-vélin


Það verður hrottalegur körfuboltatvíhöfði á dagskrá í kvöld.

Hátíðin hefst í vesturbæ höfuðborgar Íslands þar sem KR tekur á móti Stjörnunni í toppslag í Iceland Express deildinni.

Fyrir þá sem ekki komast á leikinn verður hann sýndur beint á KRTV en það er rétt að skora á alla sem hafa tök á því að kíkja í DHL höllina og sjá þessa viðureign.

Klukkan eitt í nótt er svo komið að því að frumsýna Lin-vélina á Stöð 2 Sport.

Þá taka Jeremy Lin og félagar í New York Knicks á móti LA Lakers sem unnu sætan sigur á Boston í nótt sem leið.

Það er ekki langt síðan Knicks voru í beinni á Stöð 2 Sport, en þá var Lin-æðið ekki gengið í garð. Það er með hreinum ólíkindum hvað þetta öskubuskuævintýri af leikmanni hefur slegið í gegn og nú er svo komið að Asía eins og hún leggur sig er komin með áskrift að Knicks-leikjum.

Fylgstu með á Sportinu klukkan eitt í nótt - það er kominn tími til að sjá hvort þessi Asíuættaði afbragðsnemandi með skurðinn á hökunni kann eitthvað í körfubolta.