Thursday, December 2, 2010

Griffin ætlar að eyðileggja allar körfur í Bandaríkjum Norður Ameríku


Við erum búin að nöldra um það frá því leiktíðin hófst. Eyða nokkrum færslum í það. En verðum að endurtaka okkur enn eina ferðina.

Þú verður að fylgjast með Blake Griffin í vetur og um ókomna tíð.

Hann er ekki bara frábær íþróttamaður, heldur er pilturinn nú þegar orðinn mjög frambærilegur körfuboltamaður. Og verður bara betri ef Guð gefur honum góða heilsu (við erum að reyna að díla við hann um þetta atriði daglega).

Fólk er í alvöru að stilla inn á Clippers-leiki til að sjá Griffin meiða fólk með troðslum og háloftakúnstum. Við vorum nú ekki að byrja að fylgjast með NBA í gær, en við stöndum okkur að einmitt þessu líka. Að fylgjast með Clippers bara til að sjá hvað Griffin gerir næst. Eins og við gerðum þegar Shawn Kemp og Shaquille O´Neal voru að koma inn á sínum tíma. Ekkert eins rosalegt og stórir menn sem geta hreyft sig eins og bakverðir.