Wednesday, November 10, 2010

Leppalúði dagsins...


...er aumingja Josh McRoberts hjá Indiana Pacers.

Skot hans geigaði þegar fimm sekúndur voru eftir af ótrúlegum þriðja leikhluta liðsins gegn Denver Nuggets.

Ef McRoberts hefði sleppt því að skjóta eða drullast til að hitta, hefði Indiana hitt úr öllum skotum sínum í leikhlutanum.

Slíkt gerist auðvitað ekki á hverjum degi.

20 skot niður af 21. 54 stig í leikhlutanum. Lokatölur 144-113. Fáránlegt.

En vá hvað McRoberts hefur fengið að heyra það í nótt.

Lestu nánar um þessa vitleysu hér