Tuesday, November 2, 2010
LA Clippers kann ekki körfubolta
LA Clippers er búið að tapa sautján leikjum í röð á móti San Antonio síðan árið 2006 og hefur ekki náð að rjúfa 100 stiga múrinn einu sinni í þessari ljótu taphrinu.
Clippers er dálítið sérstakt lið. Lítur rosalega vel út á pappírunum og bjartsýnustu menn ætluðu liðinu í úrslitakeppnina í vor. Það virðist þó ekki líklegt í ljósi þess að liðið byrjar 0-4 og hefur alls ekki litið vel út í fyrstu leikjunum (og þá tökum við meiðsli með í reikninginn).
Baron Davis er meiddur. Hnéð að stríða honum eins og venjulega. Sumpart af því hann er ekki í formi. Þjálfarinn hans sagði það eins og var í viðtali í gær. Davis viðurkennir það líka. Þessi hæfileikaríki milljónamæringur sem hefur atvinnu af því að spila körfubolta, er ekki í nógu góðu líkamlegu formi til að stunda vinnuna sína.
Gaman fyrir Blake Griffin að koma inn í svona vitleysu.
Það er alveg sama hvað leikmenn Clippers skila flottum tölum, þeim er fyrirmunað að vinna leiki. Chris Kaman var með svo flottar tölur í fyrra að menn neyddust til að velja hann í stjörnuliðið, en hann er með athyglisbrest og fúnkerar ekki nema endrum og eins.
Eric Gordon er vaxandi leikmaður sem nýtur virðingar en ef ekkert breytist á hann líklega eftir að smitast varanlega af Clippers-veikinni og verða gagnslaus fyrir lífstíð.
Blake Griffin er líka í þessari hættu. Hann er gríðarlegt efni en það má vel merkja í svip hans og honum líst ekkert á þetta lið sem hann er að spila með. Það er hrikalegt að svona sjaldgæft eintak eins og Griffin eigi fyrir höndum að rotna þarna í Clippers-fenjunum - nú eða lenda frekar í bölvuninni og meiðast aftur.
Það ætti með öllu að vera stórkostleg skemmtun að horfa á Clippers spila en það er eiginlega frekar átakanlegt. Eins og að horfa upp á efnilegan nemanda mæta drukkinn í alla tíma.