Wednesday, November 10, 2010
Kraftaverkið í Miami
Hann heitir Paul Millsap. Hann skoraði 46 stig í lygilegum sigri Utah á Miami í nótt.
Svipmyndir frá leiknum hér.
Átti best 32 stig í leik áður. Hafði fyrir leikinn skorað tvo þrista á ferlinum. Setti þrjá í þremur tilraunum í fjórða leikhlutanum. Ekkert nema net.
Skoraði ellefu stig á síðustu 28 sekúndunum í venjulegum leiktíma og körfuna sem knúði framlengingu.
Það var ekki möguleiki fyrir Miami að klúðra þessum leik, en það tókst.
Jazz hafði tapað einhverjum sjö í röð í Miami. Mörgum á dramatískan hátt. James og Wade gerðu sitt, en það nægði bara ekki.
Þó Jerry Sloan hafi tekið Al Jefferson út úr leiknum í síðari hálfleik og Deron Williams hafi ekki spilað í framlengingunni eftir að hafa fengið sjöttu villuna.
Fjölmiðlamenn eru strax farnir að kalla leikinn The Miracle in Miami.
LeBron James fer alltaf hamförum á móti Utah. Hann var með þrennu í nótt en er líklega búinn að fá nóg af því að spila við Jazz. Eða ertu búinn að gleyma þessu?
Það má vel vera að við sjáum stærra kommbakk eða dramatískari leiki í NBA í vetur - en þeir verða ekki margir.