Monday, April 5, 2010
Áhugaverð ákvarðanataka í illa hirtum Garði
Við höfum dálítið verið að tala um vorbraginn á NBA deildinni undanfarið og leikur Boston og Cleveland á páskadag var gott dæmi um þetta Bermúda-fyrirbæri sem aprílmánuður er orðinn.
Leikmenn Cleveland spiluðu eins og þeir væru með steinsmugu í þrjá leikhluta og Boston virtist þurfa að ganga af velli til að tapa þessum leik.
Það undarlega gerðist og leikmenn Boston byrjuðu að ganga af velli einn af öðrum eftir því sem á fjórða leikhlutann leið. Eða þannig leit það út.
LeBron fór í sinn fræga árásarham (attack mode) og gjörsamlega misnotaði vörn heimamanna. Hætti þessum bjánalegu langskotum og fór að keyra á körfuna aftur og aftur og aftur og aftur.
Árangurinn lét ekki á sér standa og á tímanum sem það tekur íslenskan stjórnmálamann að segja "ég get ekkert sagt um það á þessari stundu" - var Cleveland komið yfir.
Þá var eins og LeBron tæki þá áhugaverðu ákvörðun að vinna ekki leikinn og fór aftur að slöngva upp þessum fáránlegu langskotum sínum (0-9 í þristum í leiknum).
Við vitum alveg að LeBron er leikmaður sem getur gert nánast hvað sem honum dettur í hug -þegar honum dettur það í hug. En ekki í þetta skiptið. Þristurinn sem hann tók í lokin og ætlaður var til að drepa það litla sem eftir var af sálarlífi Boston vildi ekki niður og heimamenn héldu haus.
Þetta skot hjá LeBron var - hendur með síðum - mesti dómgreindarskortur sem við höfum nokkru sinni séð á velli frá þessum stórkostlega leikmanni. Það hefði að vísu hjálpað að setja niður öll vítin þarna í lokin, en það er ekki aðalatriðið í þessari pælingu.
Við gáfum okkur góðan tíma til að leita í Gleðibankanum, svona til að reyna að gleðja fjölmarga stuðningsmenn Boston sem lesa þetta blogg daglega, en við gátum ekki fundið mikið jákvætt til að segja um þá grænu eftir þennan leik.
Doc virðist ekki hafa eyru leikmanna, varnarleikurinn er svipur hjá sjón, það kemur alls ekki nóg frá varamönnunum, Paul Pierce verður leiðinlegri leikmaður með hverjum deginum sem líður (góður, en æpandi leiðinlegur og þú veist það!), Rasheed Wallace er BARA geðveikur og Kevin Garnett virðist ekki hafa lappir í að halda Megasi fyrir framan sig í vörninni.
Ray Ray sýndi að hann á nokkrar bombur eftir ennþá og Rondo er töffari sem spilar æ stærri rullu í þessu liði en það er eitthvað við andlega yfirhalningu Celtics sem er að fara þvert og ótuggið ofan í okkur.
Það getur vel verið að þetta lið detti í betri anda þegar alvaran byrjar í úrslitakeppninni, en öll þessi töp á heimavelli undanfarna daga eru bara allt of rotin.
Það er ekki öfundsvert að fá það verkefni að henda svona vel mönnuðu liði út úr úrslitakeppni, en á miðað við stöðuna núna er bara erfitt að sjá Boston ná langt með svona spilamennsku.