Já, því er ekki að neita að David Lee hjá New York átti einhvern sóðalegasta leik sem sést hefur í nútíma NBA í nótt þegar lið hans afrekaði að tapa fyrir Golden State í Oakland.
Lee var með 37 stig, 20 fráköst og 10 stoðsendingar, sem er hrikalegasta þrenna sem sést hefur síðan Kareem Abdul-Jabbar bauð upp á svipaðan skammt vorið 1976 (35/20/12) - mjög líklega áður en þú fæddist.
Það er rosalega leiðinlegt að þurfa að setja stjörnumerki (*) við svona frammistöðu, en í þessu tilfelli verður bara að gera það.
Golden State og New York eru agalaus lið sem hafa að nákvæmlega engu að keppa, þjálfuð af tveimur sóknaranarkistum og geggjuðum prófessorum sem leggja jafn mikla áherslu á varnarleik og Egill Helgason leggur á líkamsrækt.
Leikmenn sem hafa gaman af því að smyrja tölfræðina sína upplifa allir jólin þegar þeir spila við Warriors og það á svo sannarlega við um David Lee í þessu tilviki.
Það er hægt að lesa margt út úr tölfræðiskýrslum betri liðanna í NBA sem spila kerfisbundinn sóknarleik. Í þeim er ákveðið jafnvægi og þar má oftar en ekki sjá hvort liðinu sem um ræðir vegnaði vel eða illa í tilteknum leik. Þessi hefð fer beina leið til andskotans þegar liðið þitt spilar við Golden State.
Til dæmis er alls ekki óalgengt að bakverðir séu með jafn mörg eða fleiri fráköst en stóru mennirnir. Af hverju? Af því það eru meiri líkur á því að bakverðir hirði fráköst utan við þriggja stiga línu eftir misheppnuð langskot sem tekin eru á 12 metra færi í hraðaupphlaupum. Þannig fráköstum nærðu á móti Golden State.
Og það eru góðar líkur á því að framlínan þín sé með 70% skotnýtingu og 10 stolna bolta í leiðinni. Miðherjar Golden State eru bara meiddir en ef þeir hanga heilir í smá tíma, eru fínar líkur á því að Don Nelson láti þá spila leikstjórnandastöðuna.
Nelson vantar nú bara einn sigur til að jafna Lenny Wilkens yfir flesta sigra þjálfara í sögu NBA. Met sem segir lítið annað í þessu tilfelli en að einhver hafi verið nógu vitlaus til að borga honum laun í öll þessi ár - sérstaklega þessi síðustu og verstu.
Nelson hefur verið að leita að þessum örfáu sigrum sem hann vantaði mánuðum saman. Vandræðalegt að það sé eina gulrótin sem þetta lið hefur að keppa að. En það er nú ekkert nýtt í geðveikinni þarna við flóann.
En hey - flottur leikur David...