Vatn er blautt, himininn er blár og Lakers vinnur Utah þar sem Lamar Odom og Pau Gasol eiga góðan leik og Carlos Boozer spilar eins og átta ára gömul stelpa á súlustað.
Mikið var gert úr einvígi Lakers og Utah í gær. Liðin í fyrsta og öðru sæti Vesturdeildar þegar flautað var til leiks. Þar með var spennan búin.
Lakers hefur spilað illa undanfarið en þeir gulu fá ekki betri leik til að hlaða í sjálfstraustið en viðureign við Jazzara.
Skiptir engu þó Kobe Bryant sé með 7% skotnýtingu.
Það var gaman að sjá að Utah stillti upp byrjunarliði gegn Lakers sem innihélt þrjá leikmenn sem voru draftaðir í annari umferð og einn sem var alls ekki draftaður.
Okkur þykir það bera vitni um styrk Jerry Sloan sem þjálfara að hann skuli vera með lið Jazz í toppbaráttu í Vesturdeildinni, þrátt fyrir að það hafi verið án 2-3 lykilmanna í allan vetur - og hafi gefið frá sér tvo leikmenn í febrúar til að spara pening.
Ekkert topplið í NBA deildinni er eins "holótt" og Jazz.
Liðið hefur auðvitað Deron Williams, sem er einn besti leikstjórnandi deildarinnar og svo Carlos Boozer sem er ávísun á 20/10 leik gegn öllum liðum í deildinni nema Lakers.
Þar fyrir utan? Ekki svo mikið.
Utah er hvorki með hefðbundinn skotbakvörð né miðherja (sem getur eitthvað) í leikmannahóp sínum.
-Mehmet Okur er ekki miðherji, heldur skotglaður og mjúkur kraftframherji með hraða á við kalda aurskriðu.
-Carlos Boozer ver ekki skot og spilar vörn eins og nautabani.
-Enginn skotbakvörður eða minni framherji liðsins getur skapað sitt eigið skot.
-Varamiðherjar Jazz kæmust ekki í hóp í Iceland Express deildinni - án gríns. Nei, svona í alvöru.
-Einn maður í hópnum getur spilað boðlega vörn og varið skot, en hann er 50 kíló með blautt hár og skólatösku og spilar bara tíunda hvern leik vegna meiðsla.
Þetta lið var komið í annað sæti Vesturdeildarinnar í gær og það segir sína sögu um hindranirnar sem eru á vegi LA Lakers á leið í lokaúrslitin í sumar.
Það hefur reyndar komið fram hér á síðunni nokkrum sinnum í vetur, en það verður að koma fram aftur. Varamannabekkur LA Lakers er svo æpandi lélegur að það er orðið lögreglumál. Áhyggjuefni fyrir gula.
Og hvað segir þetta okkur?
Það á enn eftir að spila úrslitakeppnina, en eins og staðan er í dag, er Cleveland svo LANG besta liðið í NBA að það er ekki einu sinni fyndið.
Þið lásuð það hér. Það verður ekkert minna en reginhneyksli ef Cleveland verður ekki NBA meistari í júní.
LeBron og félagar hafa ENGAR afsakanir. Pressan er öll á þeim. Þeir eiga að taka þetta. Það er bara þannig.