Síður
▼
Sunday, February 6, 2011
New York bíður eftir frelsara sínum:
Við höfum forðast að fjalla mikið um fjölmiðlasirkusinn í kring um Carmelo Anthony í vetur. Eins og við sögðum í látunum í kring um LeBron James í fyrrasumar, er það nú einu sinni þannig að menn með lausa samninga geta gert það sem þeir vilja.
Auðvitað var umræðan um framtíð LeBron James áberandi á síðustu leiktíð og auðvitað var gert allt of mikið úr henni þegar fókusinn hefði heldur átt að vera á prýðilegum árangri Cleveland Cavaliers. En ástandið er miklu verra hjá Denver í vetur. Eiginlega óþolandi. George Karl þjálfari á hrós skilið fyrir að halda liðinu í sæmilega góðum málum með framtíð Anthony hangandi eins og óveðursský yfir öllum rekstri félagsins. Já, rekstri félagsins. Það er ekki orðum aukið.
Við erum af gamla skólanum og þó leikmenn eins og Anthony hafi mikið um það að segja hvað þeir gera þegar þeir eru með lausa samninga, getum við ekki kallað það sem hann er að gera Denver annað en drull. Stuðningsmennirnir eiga alls ekki skilið að þurfa að hafa þetta hangandi yfir sér og við finnum sárlega til með þeim.
Nú eru körfumiðlar í Bandaríkjunum enn og aftur farnir að skrifa Anthony til New York. Það er löngu ljóst að þar vill hann vera og það er eina félagið sem hann hefur hug á að framlengja við þegar og ef hann fær þessi blessuðu vistaskipti sín í gegn.
Það er skiljanlegt að pilturinn óski þess að spila á heimaslóðum sínum. Alla New York spilara dreymir um að spila fyrir Knicks - það segir sig sjálft.
En eitt er það sem við höfum dálitlar áhyggjur af. Og það er ansi mikilvægt atriði. Er New York að fara að gera einhverja hluti með Carmelo Anthony í sínum röðum?
Sorry, við bara sjáum það ekki.
Verður sóknarleikur liðsins óárennilegur með Stoudemire og Anthony á græna ljósinu hjá Mike D´Antoni? Trúlega verður hann það. Anthony er einn fjölhæfasti sóknarleikmaður deildarinnar. En hvað með hina hliðina á vellinum?
Okkur finnst leiðinlegt að vera með þessa neikvæðni, en það sem Knicks er að leita eftir með því að fá Carmelo Anthony í sínar raðir fellur ekki inn í neina formúlu sem skilað hefur meistaratitli svo við vitum til.
Það hefur verið gaman að fylgjast með Knicks í vetur og eins og við höfum margoft komið inn á er það sérstaklega ánægjulegt fyrir hönd fjölmargra stuðningsmanna liðsins að Eyjólfur í Eplinu sé að hressast.
En heldur þú að New York eigi eftir að fara langt í sýsteminu sem Mike D´Antoni er að keyra? Heldurðu að núverandi leikmannakjarni liðsins sé nógu öflugur til að fleyta liðinu í átt að t.d. úrslitum Austurdeildar í nánustu framtíð? Og heldur þú að Carmelo Anthony verði þá sá maður sem hjálpar liðinu að taka næsta skref ef hann klæðist Knicks-treyjunni?
Ef af þessu verður, verða Knicks með ansi stóra fjárfestingu til framtíðar í þeim Anthony og Stoudemire. Þeir eru báðir skorarar af guðs náð, þurfa mikið að handleika boltann, geta báðir betur í fráköstunum og líður áberandi betur á sóknarhelmingi vallarins. Það gæti orðið erfitt launalega að finna það sem upp á vantar til að búa til meistaraefni.
Það er orðið allt of langt síðan við höfum prófað að gera okkur að fíflum með djörfum yfirlýsingum, svo hér kemur ein:
New York vinnur aldrei titil með Stoudemire og Anthony - og enn síður með D´Antony við stjórnvölinn. Þetta er ódýr og ómerkileg yfirlýsing auðvitað, en svona sjáum við þetta bara. Afsakið leiðindin.