Síður

Monday, April 5, 2010

Hver vill spila körfubolta við San Antonio í úrslitakeppninni?

Við erum dálítið eins og meðvirk eiginkona alkohólista þegar við erum að skrifa um San Antonio. Það viðurkennum við með ánægju.

En reynið að líta fram hjá því í nokkra daga. Ef hrakspár okkar rætast eigum við ekki eftir að þurfa að skrifa mikið um þetta lið í úrslitakeppninni og enn síður næstu ár.

Það er bara ekki hægt annað en gefa þessum snillingum smá blek núna. Gömlu höfðingjarnir neita að gefast upp. Eins og rotturnar í Chernobyl.

Það var rosalega neyðarlegt þegar Spurs lá fyrir New Jersey á dögunum, en hvaða lið í NBA getur státað af því á síðasta hálfa mánuði að hafa lagt Boston, Lakers, Cleveland, Orlando og Oklahoma?

Það er rétt. Bara San Antonio.

Allt þetta án Tony Longoria. Nú síðast vann San Antonio öruggan sigur á LA Lakers í LA og það þrátt fyrir að missa leikstjórnanda númer tvö, George "Hvað meinarðu þegar þú segir að sé áhætta fólgin í því að senda gálum sem maður þekkir ekkert myndir af manni á félaganum á netinu?" Hill í meiðsli í byrjun leiks.

Þetta þýðir væntanlega að Manu verður leikstjórnandi liðsins númer eitt í 40 mínútur í leik framvegis. Bara gaman.

Mikið óskaplega langar ekkert lið að mæta San Antonio í fyrstu umferð úrslitakeppninnar!

Og hvar þurfum við að skrifa undir til að ala Manu Ginobili nokkur heilbrigð og falleg börn? Er einhver til í að lána okkur penna?